27. mars 2004

Vaknaði snemma í morgun! Klukkan níu á laugardegi. Ég skil bara ekkert í þessu. En það var bara ágætt því þá missti ég ekki af skilaboðunum frá Johönnu um að hitta hana og Söru niðrí bæ. Var sem sagt að koma úr bæjarferð með pompi og prakt; Hennes&Mauritz, NK, hádegismatur og læti. Ég keypti nú ekkert enda sparnaðu í gangi. En það er alltaf jafn gaman að hitta "brudarna", Johanna er jú flutt til Halmstad svo við hittumst sjaldan. Það var svo horror að fara heim í sporvagninum því hann var troðfullur og hjá mér sátu foreldrar með 2 börn sem GÖRGUÐU næstum alla ferðina. Ekki grenjuðu heldur öskruðu hvort á annað frekjuöskrum því þau vildu bæði ýta á bjölluna ALLTAF. Og foreldrarnir sögðu ekki neitt. Ohhh... ég verð svo pirruð á svona.

En nú sit ég hér og horfi á úrslitin í HM í skautum. Rosa gaman. Ef maður gæti nú rennt sér t.d. eins og bara á öðrum fæti.....hihihi minnir mig á þegar ég fór á skauta með Hjalta og Völu fyrir stuttu og Hjalti var að fara í fyrsta skipti! Manstu Hjalti....?

Góða helgi

Engin ummæli: