Minn ástkæri Maggi sæti er að halda tónleika á morgun, laugardag, kl. 17 í Dómkirkjunni. Að þessu sinni orgeltónleika svo endilega koma og sjá og heyra hvað hann er flinkur!
31. október 2008
25. október 2008
Aldrei hefði mér dottið í hug að ég myndi sitja fyrir með skilti til að taka það fram að ég væri ekki hryðujuverkamaður! En einu sinni verður allt fyrst og á þessum súrrealístísku tímum getur greinilega allt gerst!
Annars tökum við lífinu bara með ró hérna. Reyndar mikið að gera hjá Magga en ég naut þeirra forréttinda sem skólastarfsfólk nýtur að vera í vetrarfríi í fyrradag og gær. Það var YNDISLEGT! Ég gat náð upp smá svefni og fór og heimsótti gamla vinkonu sem ég hef ekki séð í örugglega 7 ár á fimmtudaginn. Það var auðvitað bara eins og í gær og gaman að taka upp vinskapinn aftur. Hitti svo nýbakaða foreldra lítillar Haraldsdóttur í gær og fékk að knúsa dúlluna! Þetta var hún X Ásdísar og Haralds, algjör mús! Bara 1 mánaða! Get ekki skilið að við höfum farið með Ísak svona lítinn í flugvél þegar við fluttum frá Svíþjóð! M.a.s. bara 3 vikna! En það gekk auðvitað eins og í sögu en mér finnst bara svo skrýtið að hann hafi verið svona lítill, nú að verða 3ja ára.
Nú sitja þeir frændur Ísak og Jökull og maula cerioos og horfa á Ávaxtakörfuna. Jökull í smá heimsókn því Vala er með Hjalta í óvissuferð í tilefni af útskrift hans. Já, hann er loksins að útskrifast drengurinn! Mér tókst að byrja á því að "skemma" Jökul, hann hrundi svona svakalega út úr bílnum hérna fyriri utan og fékk blóðnasir og RISA kúlu!! Held ég sé ekkert að tilkynna foreldrunum það....:S Leyfi þeim að njóta dagsins og fá sjokkið á morgun... Á meðan hann virðist ekki vera með einkenni höfuðhöggs allavega...
Jæja, best að sinna húsverkum, þeim sem ég má gera allavega!
Annars tökum við lífinu bara með ró hérna. Reyndar mikið að gera hjá Magga en ég naut þeirra forréttinda sem skólastarfsfólk nýtur að vera í vetrarfríi í fyrradag og gær. Það var YNDISLEGT! Ég gat náð upp smá svefni og fór og heimsótti gamla vinkonu sem ég hef ekki séð í örugglega 7 ár á fimmtudaginn. Það var auðvitað bara eins og í gær og gaman að taka upp vinskapinn aftur. Hitti svo nýbakaða foreldra lítillar Haraldsdóttur í gær og fékk að knúsa dúlluna! Þetta var hún X Ásdísar og Haralds, algjör mús! Bara 1 mánaða! Get ekki skilið að við höfum farið með Ísak svona lítinn í flugvél þegar við fluttum frá Svíþjóð! M.a.s. bara 3 vikna! En það gekk auðvitað eins og í sögu en mér finnst bara svo skrýtið að hann hafi verið svona lítill, nú að verða 3ja ára.
Nú sitja þeir frændur Ísak og Jökull og maula cerioos og horfa á Ávaxtakörfuna. Jökull í smá heimsókn því Vala er með Hjalta í óvissuferð í tilefni af útskrift hans. Já, hann er loksins að útskrifast drengurinn! Mér tókst að byrja á því að "skemma" Jökul, hann hrundi svona svakalega út úr bílnum hérna fyriri utan og fékk blóðnasir og RISA kúlu!! Held ég sé ekkert að tilkynna foreldrunum það....:S Leyfi þeim að njóta dagsins og fá sjokkið á morgun... Á meðan hann virðist ekki vera með einkenni höfuðhöggs allavega...Jæja, best að sinna húsverkum, þeim sem ég má gera allavega!
15. október 2008
11. október 2008
Að gefnu tilefni...
Það er allt í lagi með mig. Gleymdi bara alvega að láta vita! Er ekki með þvagfærasýkingu þannig að þetta eru óútskýrðir verkir og ég er bara spræk. Svona miðað við ástandið í þjóðfélaginu...
7. október 2008
Ýmislegt gengur nú á!
Fór í meðgöngusund í fyrsta skipti í gær. Sjúkraþjálfarinn mælti með því af því að ég fékk í grindina strax! Það var voða gott að hreyfa sig aðeins en ég fann mjög fljótlega að það fór að braka í lífbeininu og verk í mjóbakið. Sjúkraþjálfarinn sem sá um tímann sagði mér að gera minna eða bara slaka á! Aldrei má maður nú ekki neitt!
Svo eftir tímann fannst mér ég vera með samdrætti og stóð það í nokkra klukkutíma ásamt sting í náranum sem ég taldi togverki.
En þegar þetta leið ekki hjá í nótt hrindi ég í ljósmóðurina mína og hún vildi skoða mig. Fóstrinu líður vel en eftir læknisskoðun er líklegt að ég sé með sýkingu í þvagfærum og á að fara í ómskoðun á nýrum á morgun!!! Gá hvort er "útbungun á þvagleiðara"...
Svo "verð ég að passa mig" ef samdrættir koma, hvíla mig HELST Í VIKU BARA! Ég hugsaði nú bara jæja og sé það ekki alveg í anda að ég sé að fara að leggjast í sófalegu en auðvitað hlustar maður á líkamann ef eitthvað fer í gang.
Læknirinn skrifaði líka út svefnlyf fyrir mig. Já svefnlyf! Ég hef verið að sofa svona 4-5 tíma á nóttu síðan í viku 7. Og ekki samfleytt, þannig að maður er svona mis-örmagna á morgnanna. Ég ætla mér nú að fara varlega í alla lyfjanotkun en kannski prófa ég næst þegar ég er alveg búin á því og tek 1/2 töflu. Þetta á víst að vera allt í lagi...
Ísak er snilli eins og við vitum . Nú sagði hann við mig í fyrradag "á ég að lesa fyrir þig mamma? ég kann að lesa á íslensku af því ég les fyrir Jökul og Ragnar Stein!"
Og áðan sagði hann "ég kann að segja ga ga ga" og svo prófaði hann að segja Gosi og gaman og kisa og bara ljómaði af stolti og mamman klappaði og klappaði enda stór merkilegur áfangi hjá syni talmeinafræðingsins! Veiiiii
Á eftir er ég að fara að hitta vinkonu úr Kvennó sem ég hef ekki séð síðan við útskrifuðumst. Svei mér þá! Við vorum samlokur í 3 ár ásamt Önnu Dögg og annarri sem líka hefur horfið en ég hlakka mikið til að rifja upp gamla tíma og hlæja dáltið, en við gerðum einmitt mikið af því!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)