Halló halló
Jæja, komin aftur frá höfuðborginni. Ekki var það nú ferð til fjár né neins annars... frekar niðurdrepandi niðurstöður ef svo má að orði komast. Maggi komst ekki inn (enda bara 3 sem gera það) og íbúðin sem við skoðuðum var á "vitlausum" stað og hin íbúðin sem við vonuðumst svo til að myndi ganga upp fauk út í buskann. Eða sko ekki íbúðin, en strákurinn hætti við að flytja til Gautaborgar svo það varð ekkert úr neinu. Allt frekar vonlaust og okkur fannst við illa svikin af öllu og öllum. En nú var ég að skoða tölvupóstinn minn og það voru 3 búnir að senda fyrirspurnir og höfðu áhuga á að heyra um okkar íbúð. Kannski þetta reddist þrátt fyrir allt? Pabbi minn vildi nú meina það og ætli ég verði ekki að trúa honum.
Stokkhólmur var annar frekar kaldur staður og mér fannst ég vera endalaust í rúllustigum!!! Maður þarf að taka rúllustiga til að flytja sig frá A til B. Alveg ótrúlegt en þetta er sennilega bara svona í milljónaborgum.
Við erum allavega mikið búin að spekúlera í hvað skuli gera næst. Möguleikarnir eru 3:
A: Flytja heim til Íslands! Dýrt, mikil fyrirhöfn fyrir stuttan tíma (minna en ár) og hvað yrði um Skrám?? Dissum þennan möguleika. Sorry
B: Verða áfram í Gautaborg. Maggi mundi halda áfram í e-m kúrsum í skólanum og ég færi að vinna auðvitað. En M er orðinn nokkuð fullsaddur af kennurunum sínum og ég er búin að missa af öllum vinnum sem eru hérna í borginni. Yrði að ferðast e-ð út í hafsauga (eins og margir gera auðvitað) og keppa við bekkjarsystkinin um vinnurnar...hmmmm
C: Flytja SAMT til Stkhólms, ég fæ pottþétt vinnu og Maggi færi líka að vinna sem t.d. kantor og tæki jafnvel kúrsa í Háskólanum. Þá er bara að finna íbúð!!! Og það er dýrt að búa í Stkhólmi
Það er frítt fram að kjósa á milli þessara möguleika. Klikkið bara á Comments og segið ykkar álit!!! Kjörstöðum verður lokað kl. 24:00 næstkomandi sunnudag. Annars held ég að við séum búin að ákveða þetta...
Skrámur er alveg í skýjunum yfir að fá húsbændur sína heim aftur. Er búinn að vera í fanginu á okkur til skiptis í allan dag. Algjört rassgat, enda gengur hann undir nafninu rassispassi svona dagsdaglega.
Og hvað haldiði! Daði bróðir og hans samnemendur voru að frumsýna Kvennóleikritið í gær! Til Lukku bróðir sæll og vonandi ganga sýningarnar vel. Kannski þú getir sagt mér frá því svona þegar þú ert í fríi næst.... í sumar!!!!
Nú er ljóti kallinn í hausnum á mér farinn að segja mér að fara að sofa. Farðu bara sjálfur að sofa segi ég nú bara...
góða nótt
E.s. Maggi ekki enn farinn að blogga en það stendur víst til bóta...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli