26. mars 2004

Jæja, þá er loksins búið að gera við lekann í baðherbergiskrananum, en það er búið að leka þar síðan við fluttum inn! Húsvörðuinn lagaði líka handfangið á ofninum okkar sem var laust, en sagðist þurfa að senda einhvern vísari mann að kíkja á ofninn sjálfann (sem hitar ekki almennilega). Því miður lítur ekki út fyrir að við fáum nýja eldavél eins og ég er eiginlega búin að lofa Daneiellu!! Hann leit líka á gatið í gólfinu í svefnherberginu en sagði að við þyrftum sjálf að standa fyrir þeim lagningum. Sko, það var þannig að IKEA -sölumaðurinn sagði að við þyrftum stuðnings"rör" undir hjónarúmið, en sá pinni gerði barasta gat í gegnum gólfdúkinn!! "#!"#$%&/ Ætli við höfum ekki samband við heimilistryggingarnar og ath. hvað þeir segja.

Er svo syfjuð, skil þetta bara ekki. Svíður bak við augun en samt svaf ég til hálftíu! Og ég fór ekkert seint að sofa. Það var rosa gaman út´að borða með bekknum. Ég borðaði voða góðan "laxaborgara" (eitt sem hún Stella gleymdi í orlofinu sínu) og svo fórum við á pöbb á eftir og drukkum görótta drykki. Ég fékk eitthvað sem heitir Blaze eða Laze eða eitthvað sem var með muldum hnetum ofaná!!! Rosa flott sko, enda rándýrt. Það er naumast hvað allir eru stressaðir í bekknum mínum, yfir vinnu og lokaverkefninu auðvitað. Gott að vita að maður er ekki einn um það;)

Prufugerði 3 boðskort fyrir brúðkaupið í dag. Prentarinn ætlaði sko ekki að gera þetta auðvelt fyrir mig og lét öllum illum látum! En ég vann á endanum og er með 3 litaprufur með ólíkum leturgerðum og stærð á pappír! Já, ég er öll í þessu og finnst voða gaman að leika mér svona. En ég gef ekki upp hvernig þetta lítur út eða hvernig lokaniðurstaðan verður!! Svo lítur líka út fyrir að hljómsveitarmálin fyrir brúðkaupsveisluna séu í leysingi! Gef ekkert upp þar heldur hahaha. Bíðið og þér munuð upplýstir verða

Engin ummæli: