
Nú er sko aldeilis búið að taka vel til hérna í Mosanum. Búið að reka allar rykrotturnar út og ganga frá fullt af dóti. Held það séu bara 10 kassar eftir inni hjá Ísak, því okkur tókst að tæma 3 í gær. Svo tók ég geymsluna í gegn í fyrradag svo nú er betur hægt að komast um hana. En ég
skil ekki hvar bikiníið mitt og brúðkaupsnærfötin eru!!!
Ísak er orðinn svo mikið krútt, hann klappar og klappar, brosir og sýnir tennurnar út í eitt og situr flötum beinum (með sko ökklana líka í 90°) og leikur sér. Okkur er að takast að koma rútínu á svefninn og áðan svaf hann í rúma tvo tíma út í vagni í fyrsta skipti í langan tíma. Þá líður honum líka svo vel. Ég er alltaf að tuða um þennan svefn en hann skiptir mig miklu máli. Það er eins og ég sé draugur þegar ég fæ ekki nóg af svefni og eins og ég hafi lent á heilsuhæli þegar ég fæ að fylla aðeins á. Enda hef ég alltaf þurft um 9-10 tíma svefn á sólarhring svo að fá 6 tíma er kannski ekki eins og ÉG vildi hafa það en nú kvarta ég ekki. Við Maggi skiptumst líka alveg á að sofa út á morgnanna.
Í gær var afmæli hjá Jökli og gaman að sjá hann blása á afmæliskökuna og hann fékk líka RÓLU í afmælisgjöf sem Ísak fékk líka að prófa. Hann var nú pínu skelfdur en Jökull bara sönglaði af hamingju í rólunni. Svo hittum við Guðrúnu Ernu sem var að útskrifast og allt hennar hiski. Já og pabbi minn var sko líka að útskrifast!!! Sem "viðrekstrarfræðingur"!!! Við erum mjög stolt af honum fyrir það og ætla ég sko að leita til hans þegar ég fer að reka fyrirtæki í haust!
Já, ég er sem sagt að fara að vinna 1.september hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Ég mun vinna til að byrja með tvo morgna. Það er ein af eigendunum að fara í doktorsnám í ár og ég fæ að leigja herbergið hennar á meðan. Þær eru svo sjö til viðbótar þarna en allar náttúrulega sjálfstætt starfandi. Það verður skrýtið að vera síns eigins herra. Ég þarf að læra hvernig maður tekur greitt og sendir Tryggingastofnun og ég veit ekki hvað og hvað.
Jæja, nú vill sjaki litli athygli.