24. janúar 2006

Það var auðvitað yndislegt fyrir norðan. Bæði minningarathöfnin hérna og jarðarförin voru yndislegar og fallegar athafnir. Gott að fá að kveðja ömmu svona vel. Svo hitti maður svo mikið af skemmtilegu fólki. Vogar voru troðnir út úr dyrum. Við Ísak sváfum í ömmu holu og höfuðum það notalegt. Það var samt dálítið erfitt að vera maggalaus, náttúrulega ekki flóafriður fyrir gestagangi langt fram á nætur og svo bara fann Ísak örugglega til óöryggis á nýjum stað með svona mikið af ókunnugu fólki. Grét stundum voða sárt og þá vildu allir gefa góð ráð og hjálpa til sem tók pínu á taugarnar. Afinn og amman voru samt alveg frábær og hjálpuðu mikið til.

Gaman samt að því að allt í einu er Ísak farinn að brosa til annarra en bara okkar foreldranna og ekki bara á skiptiborðinu. Getur bara skælbrosað í stólnum sínum. Í gær var hann í honum með "skjáinn" fyrir framann og skemmti sér þvílíkt vel. Spriklaði og spriklaði og skríkti. Ekki langt í að hann fari bara að hlægja held ég. Enda verður hann bráðum 2ja mánaða pilturinn og farinn að vaxa upp úr fullt af fötum.

Allt á fullu í íbúðarmálum ennþá og allt óleyst. Erum með eina í siktinu á Langholtsvegi... skrýtið að við erum alltaf þar að skoða!!! Jiii hvað verður gott þegar þetta er yfirstaðið. Mér finnst þetta þreytandi verkefni að leyta að íbúð. Þó það sé líka spennandi og gaman. Maður er bara hræddur um að kaupa köttinn í sekknum eða eitthvað. Bara með endagarnatitring eins og amma Jóna hefði sagt.

Jæja, ég er niðri í tölvunni og það er svo kalt hérna að puttarnir eru að detta af mér. Kann ekki að loka glugganum!!! Ísak er bara úti í vagni í góðum gír vona ég. Ætli ég fari ekki að taka af snúrunni, setja í uppþvottavélina, búa um og taka aðeins til.....

16. janúar 2006

Sveitin mín


Mér gengur eitthvað illa að blogga þessa dagana. Um margt að hugsa og mikið að gera. ROeyni frekar að hvíla mig en að setjast fyrir framan tölvuna. Er samt núna að skrifa með "einari", Ísak er á hinni! Sætastur, en pínu illt í mallanum. Stofan er full af gestum svo við færðum okkur bara hingað mæðginin.

Elsku amma Jóna dó sl. miðvikudag. Það var tilviljun að við ákváðum að kíkja til hennar kvöldið áður því við vorum að skoða íbúð á Langholtsveginum. Sem betur fer, við erum svoooo fegin! Hún var svo hress og kát og fékk líka að sjá Ísak. Svo fékk hún bara að sofna elsku amma mín. Svo falleg og sæt. Amma sem bakaði bestu kleinur í heimi, hraut hæst, kunni að gera lummur og rúgbrauð, pissaði niður um stromp og hrekkti alla í sveitinni og bjó til víðfræg orðatiltæki eins og "maður tekur nú ekki aftur fyrir sig með það!", endagarnatitringur og Vogageðveiki...

Við Ísak förum norður í sveitina í jarðarförina, keyrum á jeppanum hans pabba (pabbi keyrir auðvitað) og verðum fram á sunnudag. Maggi verður í bænum. Þá fáum við að hitta Tinnu Katrínu frænku og auðvitað fullt af öðru frændfólki. Það verður skrýtið að vera í sveitinni og engin amma Jóna! Amma VAR sveitin, amma var Vogar!!!
Jæja, allt of erfitt að pikka með einari...

9. janúar 2006

Ljótt

Já, það ljótt að plata svona og bara ég biðst afsökunar. Mér til varnar þá hef ég ekki kíkt á svörin á þessum útreikningum enda er það bara mál hvers og eins.

Ísak er óánægður svona annan hvorn dag og skárri hinn daginn. Hann á að fara í 6 vikna skoðun á morgun og þá ætla ég bara að bera mig nógu illa og fá öll góðu ráðin. Svo erum við að spá í hvort við ættum að panta tíma í svona höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun. Skilst að það hafi hjálpað mörgum. Annars hittum við frænku Magga í 70 afmæli um helgina sem vinnur sem sjúkraþjálfari fyrirbura og kornabarna. Hún tók bæði Ragnar Stein og Ísak þegar þeir voru að gráta, hélt á þeim á sérstakan hátt, hrissti og sagði þeim að ÞEGJA! Þeir steinþögnuðu báðir tveir og þetta var ekkert smá fyndið að sjá. "Hana, þegiðu! Þetta er búið! Svona þegiðu!" Hún sagði þetta ekki á svona ljótan hátt, bara ákveðið og við sprungum úr hlátri.

Í gær fórum við í Vegghamra að spila og Ísak var sko ekki upp á sitt besta. Spurning hvort Jökull frændi hans bjóði honum nokkuð aftur í heimsókn. Sá piltur er nú alltaf eins og ljós, vaknar bara uppí rúmi og segir ekki orð, bíður bara eftir að verða sóttur.

6. janúar 2006

Hverjum ertu skotin/n í?

Alltaf gaman að svona löguðu, ástarprósentur milli þín og þess sem þú ert skotinn í. Svona gerði maður nú oft í denn hihihi. Takk fyrir linkinn Bryndís!

http://www.crushcalculator.com/content/love/182935243

5. janúar 2006

Taka þrjú

Reyndi tvisvar í gær að blogga og það eyddist í bæði skiptin. Mér er runnin reiðin núna svo ég geri þriðju tilraun.

Við fórum sem sagt að skoða 2 íbúðir um daginn. Önnur í Grafarvogi og hin á Laugarnesvegi. Okkur lýst rosa vel á hana, en herbergin eru mjög lítil og þarf að skipta um nokkra glugga. Það er bakgarður í algjörri órækt sem væri gaman að komast með puttana í og staðsetningin náttúrulega rosa fín. Hvað munar mann um 20 millur? Erum ekki alveg búin að ákveða hvort við gerum tilboð... ætlum að skoða aðeins meira fyrst.

Eins og þeir sem hafa lesið bloggið hjá Magga vita gerðum við góða tilraun til að ná í mublurnar í fyrradag. Pabbi kominn á rauða sendiferðabílinn, búið að vekja Daða og ná í Hjalta og úps! á eftir að tollafgreiða. Af hverju sagði það enginn fyrr? En það verður allavega náð í þetta í fyrramálið.

Skrámurinn minn er mættur:D Sætari en nokkru sinni. Gerði næstum gat á okkur hann var svo kátur að sjá okkur og gekk strax um með skottið upp í loftið hjá Jónu Björk. Svo er hann víst búinn að hrella þær systur, Jónu og Soffíu, með "trampi" uppí rúmi og kelsýki (vill sofa ofan á andliti manns) svo þær geta lítið sofið. Jóna reyndi að loka hann inni á klósetti en hann reyndi bara að brjóta niður hurðina á móti. En það var víst rólegra í nótt. Sennilega er hann bara svona svakalega feginn að komast á almennilegan stað að hann þurfti að fá stóran skammt af knúsi. Ég ætla svo sennilega að skella mér til hans í kvöld og klippa klærnar sem borast inn í þær systur.

Það er ekkert smá sem snjóar! Ætla samt að skella mér í göngutúr með lilleputt og kaupa í matinn í kvöld. Vona að vagninn drífi.

Veit annars einhver hvað það þýðir að dreyma endalausar sjóferðir og skip/báta? Dreymir það á hverri nóttu núna! Krossa fingur að þetta eyðist ekki...