jæja
Þá er enn einum vinnudegi lokið! Alltaf jafn skrýtið þegar miðvikudagarnir koma og fara. Ég bara skil þetta ekki. Ég átti nú í pínu vandræðum með sjálfa mig í dag þegar maðurinn sem ég var að reyna að fá til að segja "Hej Nicke" sagði alltaf "nej hicke"!! Það er auðvitað ekki fyndið en það var eitthvað við þetta þá. Þið hefðuð þurft að vera þarna...
Alveg ótrúlegt hvað það er gott að eiga góða vini! Það er held ég bara eitt það mikilvægasta í þessari veröld. Ég er ekkert smá ánægð með alla þessa vini mína. Já, ég er að tala um ykkur þarna heima. Verst að það er ekki hægt að færa Gautaborg aðeins nær Reykjavíkinni.
Svo ekki sé minnst á vinina hér! Vitiði bara hvað, það ætla allavega 7 manns að koma í brúðkaupið okkar héðan!! Búin að panta miðana og allt. Við plönum auðvitað að fara eitthvað með þeim eftir brúðkaupið, kannski norður í Mývó. Stinga þeim ofaní eina heita sprungu eða tvær og þramma um Dimmuborgir. Ekki amarlegt.
Jæja, Jóna Björk: Sabina (þessi þybbna) fór heim úr FF um helgina. Og núna um helgina fara 2 heim!!! Svaka spennó, nema eg er í Stokkhólmi svo ég missi sennilega af þessu. Kann ekki við að biðja um að fá að horfa á FF, viðurkenni ekki fyrir hverjum sem er að ég fylgist með því!! Jæja...
Kær kveðja úr Gautaborginni,
Hrafnhildur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli