4. mars 2004

Úffff... ég held alltaf að mér finnist gott að fara í heitt bað, en mér finnst það bara ekki neitt! Maður verður svo óþægilega dasaður og þungur eftirá. Ég vildi ÓSKA að við værum með venjulega sturtu....

Við föttuðum tölfræðina ekkert betur í dag! Ætli það endi ekki á að við verðum að ráða einhvern til að aðstoða okkur. Skammarlegt, en satt. Á morgun eru allavega síðustu forvöð að skrifa eitthvað af viti áður en næsti fundur með "handleiðurunum" (bein þýðing úr sænskunni: handledare) er. Hann er e. viku, en þar sem við erum að fara til Stkhólms og svo vilja þær líka ná að lesa í gegnum þetta þá er staðan svona. Anna er voða óánægð með það sem við höfum skrifað hingað til. Það gerir mig dálítið stressaða.....því ÉG var voða ánægð!! Hvað þýðir það?

Eins og gefur að skilja er þetta blessaða lokaverkefni nánast það eina sem ég hugsa um þessa dagana. En ekki á nóttunni, því þá dreymir mig martraðir um brúðkaupið! Komið að stóra deginum og allt í klessu...
Þeir sem þekkja mig ágætlega ættu að vita það núna að mig dreymir yfirleitt MJÖG undarlega og líflega drauma. Það er sko spennandi að fara að sofa á kvöldin. Yfirleitt eru þetta svona 4-5 draumar á nóttu sem ég MAN. Þykir það nú nokkuð óvenjulegt er mér sagt af fróðum mönnum. Reyndar undanfarnar nætur hefur yndið hann Skrámur verið að vekja mig nokkrum sinnum á nóttu til að kúra hjá mér, í hálsakoti eða bara á hausnum á mér. Þar liggur hann og hljómar eins og gömul þvottavél og gefur mér eitt af sínum frægu nuddum....þannig að ég er öll rauð og skrámuð eftirá. Allavega er pointið að þá man ég kannski draumana betur af því ég er alltaf að vakna. Þetta er bara eins og að hafa lítð barn..... njaaaa kannski ekki alveg eins slæmt.

Hananú, þar festist geisladiskurinn með tyrknesku popptónlistinni á hæðinni fyrir ofan. Heyrði hratt fótatak.... jebb, þetta er komið í lag. Austurlensk popptónlist er sko ansi skemmtileg skal ég segja ykkur. Ballöðurnar reyndar ekki aaaaaaalveg að gera sig.... samt skárra en japanskar ballöður sérstaklega ef það er laglaus kona á neðri hæðinni að syngja þær í kareoke!

Góða nótt!
Hrafnhildur

Engin ummæli: