15. mars 2004

Hej alla venner!
Já, nei nammi.is er ekki svo góð heimasíða! Það er ekki það að nammið vanti en þegar við vorum búin að panta eitt páskaegg og tvö prinspóló fyrir 2000 krónur kostaði 2300 að senda það!!!! Íslenskt NEI TAKK! Allavega ekki í þetta skiptið. Búhúuuuuu ekkert páskaegg......

Hringdi útaf vinnunni í Stkhólmi. Konan sagði að auðvitað ætti ég að sækja um, en svo væri það náttúrulega þannig að ef einhverjir með meiri reynslu ganga fyrir. En nú er bara að setja af stað og senda inn umsókn. Hjálp!!! Ég hef aldrei gert það áður. Umsóknarfresturinn rennur út 2.apríl.

Í nótt svaf ég ekki mikið út af íbúðaráhyggjum. Spurning hvort ég er nokkuð skyld Jónu Jakobínu Jónsdóttur eða Védísi Stefánsdóttur og allri þeirri ætt? Best að þekkjast ekki við það.... (er þetta bein þýðing úr sænsku eða..?). Nú hef ég ákveðið að ég má ekki hugsa um það í alla vega eina viku. Punktur pastabasta. Nú komar engar fréttir af íbúðarleit fyrr en eftir viku.....nema við fáum allt í einu íbúð upp úr þurru!!!!! Líklegt

Í kvöld á ég að skrifa um ICF-International Classification of Functioning, disability and Health. Jebb, troða því inn í ritgerðina okkar. Ég sit hér og klóra mér og reyna að muna í hvaða kúrs ég lærði þetta... það kviknar engin pera, og nú er ég bara með eitt lítið blað sem segir mér ekkert. /&$%#&% segi ég þá bara og kveiki á sjónvarpinu. Ha, gott á mig

Ciao þangað til næst

Engin ummæli: