Halloj
Helgin hefur verið afskaplega róleg. Tókum bara til og þvoðum þvott í gær (alltaf jafn spennandi að fara niður í fallega þvottahúsið) og skelltum okkur svo út á bar með tölvukarlinum Eyjó. Það var ekkert spes ef svo má að orði komast... ég segi ekki meira. Lærði ekkert af því (ætti kannski að skjóta þvi inn að ég er alltaf að reyna að "læra" eitthvað af öllu sem ég geri, finna svona "hvaða lexíu lærði ég af þessu"-hliðar á öllu. Eitthvað sem ég er farin að gera í seinni tíð og ég veit ekkert hvort það er gott eða slæmt...) nema kannski að stundum mega bara aðrir gjöra svo vel að finna uppá einhverju að tala um, og að ísinn á Burger King er ekki góður.
Leiddist alveg ferlega í dag og gat ekki fundið uppá neinu að gera. Ekki einu sinni "leira"!!! Hahahaha
Rættist samt úr deginum þegar ég fór á stelpudeit með Önnu og Önnu heima hjá Önnu HC. Hún var auðvitað búin að baka bæði kanelsnúða og bananabrauð svo það var ekki ögn ógeðslegt. Við töluðum bara um íbúðir og sumarið framundan enda eru þær líka í íbúðarleit. Samt hér í Gautaborg og ekki leigja heldur kaupa. Aðeins meiri alvara en leigumarkaðurinn. Það var allavega gott að geta barmað sér aðeins með þeim.
Á morgun fer ég í vinnuna og ætla líka að hringja út af vinnu í Stokkhólmi. Spennandi!!! Bið að heilsa í bili
Auf Wiedersehen
Engin ummæli:
Skrifa ummæli