úúúúú......
Brá ykkur? Ég var ekkert að skrifa í gær því ég habbði bara ekkert að segja. Hef það eiginlega ekki í dag heldur. Ég kláraði umsóknina mína og ætla að senda hana á morgun. Það væri geggjað ef ég fengi þessa vinnu, en ég býst ekki við því. Vona samt að ég fái að koma í viðtal. Þetta fer allt eftir hinum sem sækja um eins og lög gera ráð fyrir.
Maggi fór með Skrám á dýraspítalann í gær og þar fékk hann lyf sem hann vill ekki borða! Hann pissar ennþá blóði en vonandi er þetta bara sýking sem lagast þá ef ég fæ lyfin ofaní hann. Þetta er svona plasthulsa með dufti inní sem maður á að blanda í e-n góðan mat. Gekk vel í gær, hann fékk þetta í lifrakæfu, en nú lítur hann ekki við þessu. Og hvað haldiði? Hann er farinn að kúka á gólfið! Gerði það í gær þegar var lokað inná bað en svo aftur í morgun á baðherbergismottuna!!!!! Hverju er hann eiginlega að mótmæla? Hvað skal til bragðs taka? Anyone???
Á morgun er miðvikudagur. Það kemur í beinu framhaldi af því að það er þriðjudagur í dag. Miðvikudagur=vinna. Það er alltaf svo mikið að gera í vinnunni að maður nær varla andanum. En það er ekki leiðinlegt, alls ekki. Bara pínu erfitt að þurfa að mæta átta í stað níu eins og í skólanum. En það tekur mig nú bara 10 mín að hjóla svo hvað er ég að kvarta?
Ég er farin að hjóla aftur eftir veturinn. Já og talandi um vetur þá byrjar sumartíminn á sunnudaginn svo þá verðum við 2 tímum á undan ykkur þarna megin. Ég fór og náði í greinar um daginn og sé að ég hef allavega náð nokkrum eplatrjáagreinum (er þetta rétt beygt?) því það glittir í smá bleikt í knoppunum. En það var ekki auvelt skal ég segja ykkur, því mér fannst öll trén líta eins út. Og svo vita allir að "þar sem er tré, þar er skógur".
Ég á nú að vera á MSN-fundi með "gellunum" núna, en eins og vanalega er enginn mættur. Þetta er voða sniðugt (eða var meðan þetta gekk), við hittumst fjórar vinkonurnar og spjöllum í smá stund. Nú erum við held ég farnar að gleyma þessu eins og alltaf gerist með allt svona sniðugt. Síðast var ég reyndar í bíó og sá Nóa Albínóa eða "noj albínoj" eins og konan í bíóinu kynnti myndina. Okkur fannst hún góð, en auðvitað voða niðurdrepandi. Maður tekur eftir því hvað það týnist mikið í þýðingum þegar maður fer á íslenskar myndir. Mikil synd.
Jæja, best að fara að vinna aðeins í ritgerðinni þó það sé komið kvöld, kertin eru að klárast virðist mér, ég er ennþá hér......
Hey, sem minnir mig á að Guðrún Elísabet frænka mín ein góð er með brilljant link inná síðunni sinni með mismælum í ýmsum þekktum textum! http://www.folk.is/yrra_pirra_/?pb=sidur&id=303303
Góða skemmtun!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli