26. mars 2009
23. mars 2009
Tveir gullmolar

sem komu báðir í dag frá prins Ísak
- "Mamma, ég er að sjá til" (var búinn að segja langa sögu um úlf sem var búin en eftir langa þögn langaði hann eitthvað að bæta við...)
- "Ég meiddi mér í eftirlöppinni" (rak fótinn í! Var nýbúinn að biðja um útskýringu á orðinu afturlöpp sem kom fyrir í e-i bók)
Ýmislegt annað fyndið kemur út úr honum dag hvern og nú notar hann mikið "birtast", "reyndar" og "koma auga á". Greinilegt að málþroskinn er í rosalegri þróun núna.
20. mars 2009
39 vikur

Jebb, nú er sko stutt eftir! Fórum til ljósunnar í dag og bumban hefur sigið um ca 2cm þó svo að ég finni það ekki sjálf og finnist ég vera með barnið alveg uppí koki! Kannski mældi hún e-ð öðruvísi, ég get ekki alveg legið almennilega á bakinu út af grindinni svo þetta er alltaf bara svona sirka hjá okkur. En það væri snilld ef hann er kominn vel ofan í grindina, og ég er líka meira á snyrtingunni verð ég að segja... og ekki bara til að snýta mér!! Og allt annað er í góðu lagi nema kannski að ég hef þyngst of lítið sl 3 vikur...enda hef ég verið svo lystarlaus í þessum veikindum. Allavega ekki borðað fyrir TVO eins og ég gerði áður hehe.
Já, nú er bara að fara að pakka í töskuna og gera sig klára. Ég er samt ekki alveg nógu afslöppuð fyrir þessa fæðingu eins og ég vildi vera. Hefði viljað vera alveg frísk ef ég færi nú af stað fljótlega. En ég fékk sýklalyf við kinnholubólgunni sl þriðjudag og það virkar nú eitthvað hægt... En ég er nú eitthvað betri af verknum en kvefið er allt fast oní mér og uppí mér og allt um kring. Bleeee...
En nú erum við komin með vögguna, fáum bara lánaðan vagn og baðborðið bíður betri tíma! Allt reddí og sjáum nú til hvort hann kemur þegar pabbinn er að stjórna tónleikunum sínum.... Ætla að biðja pabbann að taka bumbumynd í dag og setja inn. Mældi í morgun og hún er 107cm allan hringinn! Það er assk...gott bara enda ekkert grín að snúa sér í rúminu! Eða koma sér upp úr sófanum!
16. mars 2009
Óhefðbundnar lækningar
Þá er maður endanlega búinn að tapa sér! Ég er orðin svo þreytt á þessu kvefi og sleni að nú er ég með hvítlauksrif í annarri nösinni, öðru eyranu, búin að smyrja hvítlauk ofan á brauð OG gleypa 1/2 rif! Niðurstöður þessarar tilraunar verða kynntar síðar.
Það varð aldreilis uppi fótur og fit hérna á laugardaginn. Þá kom í ljós að baðborðið sem við ætluðum að nota er ónýtt og að ekki var hægt að gera við skerminn á vagninum! Móðirin fór nánast á taugum og fór í fýlu. En auðvitað reddast þetta eins og annað. Ætlum að athuga hvort e-r annar getur gert við vagninn annars eru 2 í boði til láns og baðborðið er ekki heilagt! Þetta reddast... EN ÞETTA VAR BARA EKKI EINS OG ÉG HAFÐI HUGSAÐ MÉR ÞAÐ!
Þannig að nú ætla ég að eyða deginum í að athuga hvað hægt er að gera í þessu. Og hvíla mig. Með hvítlauk í nefinu. (Væri vís til að fara út með þetta....)

11. mars 2009
Þá er drengurinn alveg búinn að skorða sig og samdrættir aukast dag frá degi! Það er allt hið besta mál og kemur honum vonandi bara sem lengst í átt að áætlunarstað áður en allt fer á fullt. Ég fór í skoðun í morgun og allt kom vel út eins og vanalega en ég fór eitthvað klaufalega upp af skoðunarbekknum og er alveg frá í bakinu núna. Spilar kannski inn í að við Jóna Björk fórum eitthvað að skottast í búðir á eftir... er allavega bara að bíða eftir grjónapokanum úr frystinum til að geta kælt bakið mitt.
Annars er svo sem ekkert nýtt. Jú, r-ið hjá Ísak er alveg komið og alveg hætt að vera fyndið! Bara mjög flott! Hann er að fara að leika veiðimann á samveru í leikskólanum á morgun. Og ekki hvaða veiðimann sem er heldur sko veiðimanninn í Rauðhettu! Gleymdi að spyrja hvort við gætum komið og horft á... Ég fór og horfði á hann á danssýningu í fyrradag, voða gaman. Hann hreyfði sig nú ekki mikið en reyndi eitthvað að dilla sér með. Tók svo virkan þátt í Fugladansinum og Superman-laginu! Allt voða krúttlegt. Ég hins vegar sat og svitnaði og svitnaði, var enn dáltið lasin nefninlega. Já, ég náði mér í kvefpestina hans Ísaks og var bara rétt að jafna mig almennilega í gær. Og þá hafði mér tekist að koma þessu á mömmu! Oh það er svo leiðinlegt að vera lasinn.
Hey! Og ég er byrjuð að prjóna litlar hosur fyrir litlar fætur... ætli ég klári?
Nokkrar nýjar myndir komnar inn, m.a. í bumbualbúmið

6. mars 2009
37 vikur
JÆJA! Nú er barnið fullburða. Hann má samt ekki koma alveg strax þar sem ég tók við af Ísak í kvefpest og geri nú ekki annað en að snýta mér og bryðja hálstöflur. Ísak er búinn að vera heima síðan á þriðjudag, þá var hann með 40 stiga hita sem er mesti hiti sem hann hefur fengið litla skinnið. En hann klárar þetta vonandi um helgina og kemst í leikskólann í næstu viku. Ég ætla mér líka að klára þetta á stuttum tíma. Eins gott að drekka dáltið af engiferdrykk og spurning að borða bara hvítlauk?
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)