Hæ hó
Í dag þurfti ekki að hafa húfu og vettlinga ha ha!! Og í dag byrjaði Maggi að blogga:www.maggiragg.blogspot.com Hvernig setur maður inn krækju svo það sé hægt að komast á síðuna hans gegnum mína og öfugt? Er það haloscan.com?
Við erum farin að hringja í fólk útaf íbúðum í 2. sinn!! Erum komin hringinn!!! Maggi hringdi í eitthvað númer áðan og þá var það rússneski karlinn sem kom hérna um daginn. Dísúss, eins gott að fara að halda bókhald yfir númerin. Annars er Frida að fara að skoða íbúð fyrir okkur í fyrramálið. Segi ekki meira.
Til hamingju með tvítugsafmælið Berglind og til hamingju með afmælið Ásdís Ýr!!! Gaman gaman fyrir ykkur. Og til hamingju Guðrún Erna frænka!!!!
Það gekk vel í vinnunni í dag, þó að ég væri svona stressuð út af fundinum. Þið þurfið ekkert að vita smáatriðin en eiginmaðurinn var ekki eins hræðilegur og ég hélt. Altsvo ekki eiginmaður minn auðvitað því ég á ekki neinn....ENNÞÁ! En bráðum á ég það HAHAHAHAGAMANGAMAN. Hvernig gengur hljómsveitarleitin pabbi og Indra? *blink*
Jæja, súkkulaðikakan var að koma út úr ofninum! Og heimildarmyndin í sjónvarpinu er að byrja svo ég bið ykkur vel að lifa!
Hressari Hrafnhildur en í gær
Engin ummæli:
Skrifa ummæli