31. mars 2004

HJÁLP!!!!! Er einver sem kann eitthvað um ketti þarna úti? Afhverju kúkar kisinn minn á gólfið????????????

Það er komið sumar, sól í heiði skín. Vetur burtu farinn, tilveran er fín!! ÉG sver það, held það sé yfir 10 stiga hiti og sól úti. Í morgun þegar ég hjólaði í vinnuna var í frostmarki og maður var bara með húfu og vettlinga uppá gamla mátann, en þegar ég hjólaði heim var kápan bara flaksandi og hlýr vindur. Yndislegt. Enda er allt fullt af börnum úti að hjóla og leika og óvenju mikið af foreldrum sem horfa á. Það er vortákn, þegar fólkið er komið út á gras. Og þetta á að vera svona í nokkra daga núna og ég er í fríi!!!! Sko Anna er í Feneyjum og ekki ætlist þið til að ég standi á haus í ritgerðasmíðum? 'O nó bitte. Ætla bara að fara út í skóg og leika mér. Kannski sér maður maura, það er aldrei að vita. Talandi um maura þá var ein stelpa í yngri bekk í talm.fr. í Afríku og kom heim um daginn og var með skrýtið bit á hendinni. Stundum var eins og gröftur í því og stundum ekki. Svo fór hún til læknis og fyrst vissu þeir ekkert en svo allt í einu segir læknirinn: " Nei! Þetta er ormur!!!" Pæliði í því, hún var með orm inní hendinni, lifandi og bara skemmti sér vel. Læknirinn lokaði fyrir sárið svo hann fékk ekkert súrefni og þá kom hann út og Johanna sá augun á honum og vorkenndi honum bara. Ekkert klígjugjörn manneskja, hló bara þegar hún var að segja frá þessu! ÉG mundi í fyrsta lagi æla, síðan panika og svo DEYJA!! Ojbarasta húva.....

Jæja, Maggi á tónleikum í kvöld svo ég verð að hlæja að vinum ein. En "kúkalabbi" er nu hérna hjá mér eins og vanalega.
Gleðilegt sumar!

Engin ummæli: