Lærdómur dagsins:
HUGSA áður en maður framkvæmir!
ALDREI að treysta tölvum!
ALLTAF að fara á fætur við fyrstu hringingu.... eða allavega reyna það
Það byrjaði sem sagt með því að ég svaf yfir mig. Var reyndar bara að fara að hitta Önnu og vinna með lokaverkefnið, en samt... Og svo var ég með drullugt hár svo ég neyddist til að þvo það og svo bara á með hjálminn og út.
Við þurftum eitthvað voða mikið að kjafta áður en við komust í gang að vinna, en það gekk rosa vel. Vorum búnar um tvö og bara eftir að ath. hvor þetta hefði ekki ÖRUGGLEGA geymst. Það hafði það EKKI. Við erum að tala um að gögn uppá nánast 300 aðila með 11 svörum á hverju blaði voru bara uppétin af skrattans tölvunni!! Fattiði!?>300 x 11 = ógeðslega mikið!!! Það var ég sem reif út diskettuna áður en við vorum búnar að fullvissa okkur um að þetta væri þarna. Við reyndum í hálftíma að finna þetta því einhver sagði mér að tölvur gleymdu engu en þar sem Torfi frændi var hvergi nærri var bara að klípa sig í handlegginn og byrja uppá nýtt. Af þessu er hægt að draga fyrrnefndan lærdóm dagsins. Enda flýtti ég mér heim og fékk mér stóra sneið af klessukökunni og ís með!! mmmmmmmm
Fólkið sem kom að skoða var frekar dularfullt! Hann kíkti í alla skápa og sagði ekki mikið meðan hún blaðraði og blaðraði. Henni fannst nú ekki mikið til eldhússis koma og vill láta endurnýja ef þau taka þetta. Allt í góðu með það svo sem. En við megum ekki segja að við komum frá Gautaborg eða af hverju við erum að skoða þeirra íbúð (alltsvo við stelpuna sem býr þar núna)! Er það ekki dálítið spúkí?
Nema hvað, svo hringdi e-r Peter í gær og hefur áhuga á íbúðinni. Maggi talaði við hann en hingað til hef ég séð um þetta. Samtölin hafa verið mjög ítarleg og staðið í allavega 20-30 mín. Þetta samtal þeirra karlmannanna stóð í hæsta lagi í 5 mín!!!
-Áttu íbúð?
-Já, en þú?
-Já, má ég skoða?
-Já, komdu bara á laugardaginn
-Ok. bless!!!
Sannast þar með orð Hellisbúans að karlmenn veiða sér upplýsingar meðan konur þurfa að þreifa fyrir sér endalaust. Munið þið ekki þegar hann fór að kaupa föt og tók spjótið og fór og veiddi sér skyrtu? Tja.... það var allavega fyndið
Jæja, Skrámur er kominn í fangið á mér og farinn að "nudda" mig með klónum sínum. Ætla að liggja hérna í sófanum og horfa á Óskarinn.
Þangað til næst,
Hrafnhildur tölvubani
Engin ummæli:
Skrifa ummæli