Jæja, hann kom. Með einhverja svaka gellu með sér og svo digitalmyndavél. Tók myndir af öllu og fór svo!! Létt og laggott (lagott?). Nú er bara að bíða og sjá. Ég ætla að hringja í konuna á morgun þegar hún er búin að fá myndirnar.
Er að skrifa um stam og gengur svona asskoti vel (ég má vera í pásu núna). Þetta er auvitað fyrir verkefnið, því þó að við höfum ekki fengið neinn sem stamar til að taka þátt, þá vildu handleiðararnir að við hefðum það með því það var ætlunin frá byrjun. Það er allavega allt GEYMT hérna á harða disknum!!
Í kvöld er stór stund. Það er "Melodifestivalen" þeirra Svía. Já, góðir hálsar, söngvakeppnin hefur ráðið ríkjum hérna í mánuð og nú á loksins að enda þetta í kvöld. Það voru nefninlega 4 undankeppnir sem öllum var sjónvarpað og þar að auki "aukakeppni" fyrir lög sem voru nálægt því að komast áfram!!!! Hún Charlotte Nilson sem keppti fyrir Svíahönd og sýndi svona vel á sér brjóstin er kynnir og er enn að sýna á sér brjóstin sem hafa stækkað síðan Selma sá þau síðast því hún er víst með barn á brjósti. Líður ykkur ekki betur að vita þetta? Ég held allavega með Shirley Camp bara svo þið vitið það. Hún verður ekki í alveg eins stuttum kjól og allar hinar sem taka þátt!!! (þið sjáið ég er vel inní málunum).
Hvernig er þessu háttað á Fróni þetta árið? Erum við ekki örugglega með?
En á meðan beðið er eftir þessu er eins gott að bara prjóna eins og einn vettling! Góðar stundir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli