
Auðvitað tók ég mynd! Maður klikkar ekki á smáatriðum!
Bara kominn þriðji í aðventu! Eruð þið búin að átta ykkur á því að það er vika til jóla? Svei mér þá. Ég er búin að afreka ýmislegt; fara í jólamat í báðum vinnunum, fyrst alla leið til Njarðvíkur í brjáluðu veðri og svo uppí skóla þar sem sjálfur Friðrik Ómar mætti AAAAAAAHHHHHH!!!, fara á litlu jólin með tvo gaura og dansa í kringum jólatréð (þeir voru kannski ekki alveg með á nótunum og fannst þetta allt hið alvarlegasta mál eins og myndin kannski sýnir),

ég er búin að gera konfekt með frænkum mínum OG með tengdafjölskyldunni. Þar fóru Ragnar Steinn og Ísak á kostum og voru bara ótrúlega sætir. Eru þeir ekki bara dálítið líkir?

Nema hvað að í frænkukonfektinu gerðist ekkert konfekt! Úps! Við ákváðum að taka upp sið mæðra okkar sem alltaf hittust þegar við vorum litlar og gerðu svo glimrandi fínt konfekt, allir með svuntu og slaufur í hári og sleiktu EKKI puttana! Svo bara fór það þannig að hráefnið komst aldrei upp úr pokunum. Gott hjá okkur, ekkert stress á aðventunni.
Svo fór ég á aðventutónleika hjá Fílharmoníunni sem var geggjað (Maggi frumflutti verk e sjálfan sig!!!) og á jólatónleika Kór Langholtskirkju og heyra pabba labba syngja og Ólu koma með jólin. Eivör var líka alveg rosalega flott! Gæsahúðin fór bara ekki af fyrr en um nóttina.
Hún fór af í sambandi við næturbrölts lítils manns með stóran vilja sem vildi EKKI sofa í sínu rúmi. Fyrst var hann með leiðindi við pabba sinn og lét hann hafa fyrir sér og fékk að lokum að sofna í okkar holu. Svo vaknaði hann bara í sínu litla, kalda og klakafulla rúmi og lét ekki bjóða sér það. Nú kann hann sko að standa upp og henda dóti í gólfið svo það gerði hann auðvitað. Var kominn með ekka strax á fyrstu grátrokunni og milli ekkasoganna tilkynnti hann: "dah-t". Þá brosti maður nú út í annað þó klukkan væri 02:19!!! Auðvitað kom hann á endanum uppí en þá svaf mamman ekki mikið eftir það svo við slepptum bara sundinu í morgun.

Svo fórum við í gjafaleiðangur og keyptum líka jólatrésfót. Ég hlakka svo rosalega til að hafa jóltré!
Ahhh á morgun fer ég ekki að vinna fyrr en á hádegi og á þriðjudag og miðvikudag eru bara helgileikur, litlu jól og jólaball í skólunum. Ljúft að vera talmeinafræðingur skal ég segja ykkur. Ég hvet alla til að fara í þetta nám!