Skrámur kúkaði enn einu sinni á gólfið! Hvað er í gangi? Hverju er hann að mótmæla? Hann gerði þetta beint fyrir framan nefið á mér og virðist ekkert skammast sín. Ég sendi allavega fyrirspurn á e-n kattarráðgjafa á netinu, en er ekki búin að fá svar.
Við vorum vakin hálfátta af símanum; rafvirkinn sem ætlaði að gera við eldavélina. Svo sofnaði ég aftur og vaknaði við dyrabjölluna korter í níu, minn mættur. Ég var nú að vonast til að hann gæti ekki gert við þetta, en því miður, ofninn er kominn í lag. Hann var nú alveg sammála mér um að það væri fáránlegt að fá ekki bara nýja, þetta er 20 ára gamalt og örugglega 100 leigjendur búnir að búa hérna. Ojbara. Enda er hún ógó...
Við Anna ákváðum að hittast ekki fyrr en hálfellefu því ég vildi ná að tala við leigusalana sem opna kl.10. En viti menn, akkúrat í dag opnaði ekki fyrr en 11 svo ég fór fýluferð...svo týpískt.
En ég fór nú ekki fýluferð á leiðinni heim, því þá stoppaði ég í bókabúðinni og keypti í boðskortin og umslög svo nú er bara að fara að prenta út! Veiiiiii gaman. Maggi kom með mér og valdi lit og allt í gær, örugglega ekki allir karlmenn sem myndu hafa áhuga á því! Svona er hann nú frábær.
Annars á að fara snemma í rúmið, bara aðeins fyrst að horfa á bráðavaktina. Á morgun verðum við að vera duglegar því við ætlum að senda handleiðurunum verkefnið fyrir fundinn sem verður e. viku. Anna er svo að fara til Feneyja yfir helgina, algjör lúxus! Bið bara að heilsa ykkur!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli