Jakob er búinn að vera lasinn síðan á þriðjudag. Hiti og hor og nú mikill ógeðslegur hósti. Hann hóstaði svo mikið í gærmorgun að hann kastaði upp yfir mig! Gaman að byrja morguninn þannig ;-) En hann er hitalaus og hóstar ekkert á nóttunni lengur svo ég er að vona að þetta sé búið. Hins vegar er Ísak að kvarta um höfuðverk og magapínu núna svo ætli hann sé ekki að taka við... Annars var hann ansi skondinn í fyrrakvöld. Lýsti því yfir að hann ætlaði að verða afi sem væri bara heima, ekkert að vinna, þegar hann yrði stór. Hann ætlaði að búa í sveit því þá þarf maður aldrei að fara í vinnuna! En hann ætlaði samt að vera læknir því hann myndi passa barnabörnin þegar þau væru veik og þá væru þau örugg. Hehe hann er að óska sé sama hlutverks og amma Dísa hefur fengið. Hún hætt að vinna og búin að vera að passa Jakob sl. viku í veikindunum. Ísak hefur áður sagt að hann óski þess að hann sé ekki í leikskóla svo hann geti alltaf verið hjá ömmu Dísu. M.a.s. stundum stunið að honum sé svoooo illt í maganum að hann bara verði að vera hjá ömmu sinni. Klókur

Amma Kristín var að passa drengina á miðvikud.kvöldið. Hún var að lesa fyrir Jakob og spyrja hann út úr "hvað er þetta?" Þegar hún benti á nornina svaraði hann; "amma". Hann var örugglega með óráði af hita blessað barnið hahaha. En fyndinn er hann. Hann er líka ALJGÖR bókaormur. Kemur með hverja bókina á fætur annarri hérna fram og lætur okkur lesa til skiptis. Í uppáhaldi núna eru Max á leikvellinum og Max í feluleik, Bóbó bangsi og Tuma bækurnar. Eða "Tumi læknir" eins og hann kallar hann. Kom að honum undir hjónarúmi í gær (var að elta Mahler) tautandi við sjálfan sig "Bóbó bangsi rólar og rólar, það er ákaflega gaman.." upphafssetningin í bókinni um Bóbó. Það er mjög lítið sem Jakob leikur sér með dót, hann skoðar bækur og eltir köttinn inn á milli. Reyndar þegar hann sest niður við kubbana eða playmoið þá þykist hann aðeins; lætur kallana hoppa eða labba í smá stund.
Jæja, drengir heimta epladjús. Skal gert
5 ummæli:
Ahh, ég hefði nú ekkert á móti því að vera hjá ömmu Dísu ef ég væri veik. Örugglega vel hugsað um mann.
Ó það verður sko enginn svikinn af því að vera hjá ömmu Dísu, lasinn eða ólasinn
Hrafnhildur
Ég held að það sé enginn svikin af því að vera hjá ömmu Dísu. Ég hætti í leikskólanum 5 ára til að vera með ömmu og afa þannig skil Ísak bara vel:o)
Jóna Skjóna
Ætla bara að kvitta . Gaman að kíkja hingað inn einstaka sinnum og fá að fylgjast með sætu strákunum þínum.
kveðja
Þóra Marteins
Skrifa ummæli