Ég held að það besta sem gat gerst var að sellóið brotnaði um daginn og hann fékk 3 vikna pásu. Hann hefur tekið þvílíkum framförum síðan og lærir sí flóknari lög. Nú er hann að spila lag sem krefst þess að fingurnir færi sig milli strengja OG boginn líka! Rosa flókið sko fyrir 5 ára. Hann situr með tunguna út og útskýrir þetta allt fyrir mér. Hann spilaði fyrir krakkana á deildinni sinni í síðustu viku og tók svo sellóið með í föstudagsmat í Fiskó sl. föstudag og spilaði fyrir ömmu og afa og svo spiluðu þeir frændur í fyrsta sinn saman; Jökull á píanó og hann á sellóið. Þeir gátu spilað "gulur, rauður.." og "Góða mamma". Algjörir snillingar enda ekkert slor í tónlistaruppeldinu hjá þessum drengjum. Svo ekki sé nú minnst á þegar þeir fóru á ballettnámsekiðið sl. vor. Aumingja Frosti og Jakob verða bara látnir éta sand, öll menningin fer í elstu synina.
2 ummæli:
Ísak er svo flottur og duglegur, ég held að litlu drengirnir eigi nú eftir að spjara sig bara vel;o)
Kv. Jóna Björk
hann er svo guðdómlega flottur þessi elska. Hlakka til að heyra litla snillinginn lífsglaða spila.
amma Krisín
Skrifa ummæli