
Við erum búin að vera að lesa Bangsímon fyrir Ísak sem kvöldsögu. Hann er bara OF dásamlegur hann Bangsímon. Þessar línur voru í kafla kvöldsins:
"Halló Gríslingur," sagði hann. "Ég hélt að þú værir úti."
"Nei," sagði Gríslingurinn, "það varst þú sem varst úti, Bangsímon."
"Já, einmitt já," sagði Bangsímon. "Ég vissi að annar okkar hefði verið þar."
1 ummæli:
:-) Hlakka til að lesa Bangsímon fyrir Silju. Á "leslistanum" fyrir Silju eru plast og taumyndabækur :-)
Skrifa ummæli