28. febrúar 2011

Bíó

Við Ísak og Jökull fórum í bíó í gær. Sáum Jóga Björn í þvívídd. Það var bara hin besta skemmtun en elsku kúturinn minn var ekki mjög spenntur. Hann veit hvað hann er hræddur við hávaðann. Held hann hafi síðast farið á Algjör Sveppi með Hjalta og Jökli og Hjalti hélt á tímabili að hann yrði að fara með hann út. Núna voru auðvitað auglýsingarnar á hæstu stillingu og hann hrökk í kút við allan óvæntan hávaða. Var orðinn skíthræddur þegar stuttmynd um Road Runner var sýnd og þegar mér varð litið á hann við hliðina á mér sá ég að barnið hristist bókstaflega og skalf! Allur líkaminn titraði og hann var ískaldur. Litla skinnið mitt, hann var svoooo hræddur! Sem betur fer jafnaði hann sig þegar lækkað var í mesta hávaðanum og myndin byrjaði. Jökull veltist um af hlátri við hliðina á honum.

Alveg ótrúlegur óþarfi þessi hávaði í bíó! Mér finnst oft að þetta sé allt of hátt stillt, hvað þá viðkvæm barnaeyru. En Ísak er óvenju viðkvæmur og maður verður kannski bara að muna eftir eyrnatöppum fyrir hann eins og á Gamlárs og Menningarnótt.

Við fengum konu til að sölumeta íbúðina um daginn. Hún hringdi í dag og lét vita með áætlað verð. Það var svipað og við héldum. Við erum alltaf að skoða á netinu en algjörlega óvíst hvort við getum nokkuð hreyft okkur. Verðum eiginlega bara að bíða og sjá til.

3 ummæli:

Gunnar Mágur sagði...

æi litla skinn, en alveg rétt, á barnasýningu og krakkar með mun næmari heyrn en við, þetta nær bara engri átt. en fúlt með íbúðina vona bara það besta

Anna sagði...

Elsku karlinn minn! Svona myndi alveg kremja móðurhjartað í mér.

Glatað með íbúðina. Það er bara fátt spennandi við þetta efnahagsástand hjá okkur hér á klakanum ! Mig langar svo að fá ykkur hingað í Vesturbæ Kópavogs.

Nafnlaus sagði...

Maður verður bara að þrauka í þessu ástandi og vona það besta! Kaupa kojur og losa sig við óþarfa dót ;-)
Hrafnhildur