Jæja best að smella inn einni færslu
Hér gengur allt eins og í sögu. Eða allavega eins og við er að búast á þessu "moldvörputímabili" eins og vinkona mín orðaði það. Jakob er reyndar farinn að krefjast meiri athygli - sko ekki alltaf hægt að vera eins og dúkka! Við höfum verið að ganga dálítið um gólf undanfarið. Sérstaklega á kvöldin... og næturnar ganga svona misjafnlega. Hann er reyndar ekkert að skæla þá en vaknar stundum fulloft fyrir mig... minnir mikið á stóra bróður þá! Og svo þegar hann er búinn að drekka liggur hann í vöggunni sinni og rembist og rembist þessi elska og þá getur mamman ekki sofnað. Honum finnst líka svo gaman að kúka í hverja einustu bleyju svo maður er svona dáltíð að brölta á nóttunni. En Maggi hefur verið rosalega duglegur að fara með hann fram svo ég geti sofnað. Þá sofa þeir í stofunni feðgar! Og þá hefur litliputtinn hans pabba stundum þurft að duga og gerir það bara mjög vel! Þvílíkur sogkraftur í mínum. Hann er líka farinn að taka snuðið enda byrjuðum við með það þegar hann var bara um 5 daga gamall. Stundum sefur hann góða dúra á nóttunni og þá í alveg 2 1/2 - 3 tíma á milli gjafa og það er bara lúxus! Vonandi það sem koma skal! Svo fara þeir feðgar Maggi og Jakob í daglega göngutúra í vagninum. Eða sko Maggi er ekki í vagninum heldur bara Jakob. Veðrið hefur verið svo gott að þeir rölta um hverfið í góðan klukkutíma. Ísak spurði einmitt um daginn hvert pabbi sinn væri að fara. "Bara í göngutúr um hverfið" Þá gall í Ísak "Mamma! Þeir ætla að hverfa!" Gullkornin bara vella út úr honum þessa dagana svo maður hefur ekki undan.
Páskarnir voru mjög fínir hjá okkur. Vorum í mestu rólegheitunum hérna heima á milli matarboða. Ísak er voða duglegur að passa litla bróður og vottar ekki fyrir afbrýðissemi. Hann vill fá að kyssa hann og halda á honum og ef hann grætur fer hann og leggur vangann að hans vanga og segir "þetta verður allt í lagi". Algjört krútt.
Minnir að ég hafi verið að setja inn nýjar myndir um daginn... best að tékka á því og ef ekki þá geri ég það bara núna!
3 ummæli:
Gaman að fá fréttir af ykkur. Vonandi að hann fari að sofa langa lúra á nóttunni. Það er svo gott að fá að sofa í nokkra tíma í einu!
Ísak er auðvitað svo blíður og góður eins og nafni sinn, vonandi heldur hann áfram að vera góður og blíður við lillabró.
Gangi ykkur áfram vel.
Bryndís frænka
Gaman að fá að fylgjast aðeins með moldvörputímabilinu ykkar! Hér gengur líka allt vel, nema sú stutta er nokkuð illa haldin af bakflæði, gubbar í tíma og ótíma og á stundum erfitt með að sofna. Stóra systir hennar var samt svona líka, svo við erum í ágætri þjálfun;) Gangi ykkur áfram sem best, vona að næturnar fari að róast hjá ykkur, það er svo mikilvægt!
Kveðja, Þórunn í Ás
Jæja, hvað er að frétta af ykkur?
Kv. Bryndís frænka
Skrifa ummæli