30. apríl 2009

Stubbur er orðinn stór


Fyrir mömmurnar sem lesa þetta: Jakob mældist 59cm og 4910kg í 6 vikna skoðuninni sem hann fór í á 5 vikna afmælinu sínu. Vel af sér vikið hjá okkur, enda er hann afar duglegur að drekka. Ísak var það nú reyndar líka en ekki orðinn svona stór og þungur fyrr en 7-8 vikna!


Á eins mánaðar afmælinu brosti Jakob til mín alveg hægri vinstri og ég náði því næstum á mynd og alveg greinilega á videó. Ég tók alltaf svona "fangamynd" af Ísak á mánaðar-afmælum og ætla að gera það líka með litla kóp. (Ísak segir alltaf Jakóp)


Annars lítið að frétta. Ég virðist vera með eilífðar-bakteríur í mér sem taka sig upp á 1-2ja vikna fresti og er ég enn orðin slöpp með smá hálsbólgu og kvef! Ótrúlega leiðinlegt, en kannski bara er líkaminn ekki með mótstöðu þegar maður er svona ósofinn?


Maggi átti afmæli í gær og við fórum út að borða í hádeginu af því tilefni með kópinn með okkur. Voða notalegt þó veðrið væri frekar subbulegt. Nú er hann aftur 2 árum eldri en ég hahaha...gerist alltaf með reglulegu millibili sko!


Jæja, nú er stund milli stríða og ég ætla því að lesa BA -ritgerðina hennar Jónu Bjarkar mér til skemmtunar og fróðleiks.

Engin ummæli: