Já, hann er farinn að fíla það vel að láta ganga með sig um gólf og elskar að hlusta á viftuna, sérstaklega ef skrúfað er frá krananum um leið. Svo náðum við í hrærivélina í gær og hún kemur sko sterkt inn! Þá lygnir hann alveg aftur augunum og snarþagnar bara.
Nú er hann orðinn 4 vikna og auðvitað algjör sjarmör þegar hann er vel upplagður. Spurning hvort hann er farinn að splæsa brosum en stundum hefur hann brosað þegar hann er vakandi og horfir á okkur en það er samt eitthvað svo óljóst hvort það er magagretta eða alvöru! Skælbrosti samt framan í mig áðan en sama hvað ég reyndi þá kom ekki annað. Alveg spari spari greinilega.
Nú situr hann í stólnum sínum og fær rassanudd. Hann er samt farinn að glenna sig aðeins enda eru komnir 2 tímar síðan hann fékk síðast að súpa svo ætli þetta verði ekki allt í dag.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli