
Já eins og dyggir áhangendur Fésbókarinnar hafa séð er nafnið komið.
Jakob
Nafn sem við vorum líka með þegar við vorum að velta fyrir okkur nafni á Ísak svo það hefur verið að meltast lengi. Samt fannst mér eitthvað svo erfitt að ákveða þetta og segja það upphátt! Alveg eins og með Ísak. Þetta er nú bara út í loftið en samt gaman að þetta eru líka nöfn amma okkar Magga, Jakobína!Svo er bara spurning hvenær við skírum, sennilega bara fljótlega.
Jakob fór svo í sitt fyrsta bað áðan og líkaði harla illa! En hann fékk sopann sinn á eftir og sofnaði sáttur í mömmuholu. Annars gengur allt eins og í sögu. Hann er voða lúfur og góður, sefur og drekkur og grætur sjaldan. Mamman er að jafna sig og líður betur með hverjum deginum. Gat labbað út í apótek áðan sem var voða gott, gott að komast út. Vonandi er frostið svo bara farið og vorið á næsta leiti. Kannski maður fari að komast í göngutúr með snúlla í vagninum!
Ísak er rosalega góður við litla bróður, vill halda á honum og klappar voða fast, helst í augað! Svo hleypur hann í burtu æpandi þegar hann grætur og hrópar "ég þoli ekki svona gól". En hann er nú bara að leika... er alls ekkert pirraður eða afbrýðissamur. Ljósan sem kom í heimaþjónustu var svo dugleg að hrósa honum og láta hann hjálpa sér. Við fengum sömu og ég var hjá í mæðraeftirlitinu, við kölluðum hana "litla krúttið" því hún talaði alltaf um barnið sem litla krúttið með voða krúttulegri röddu...dáltið fyndið! En hún reyndist alveg frábærlega og ég á ekki orð yfir hvað þetta er frábær þjónusta! Þurfti þvílíkt á henni að halda verð ég að segja.
En nú er best að fá sér blund, maður sefur nú ekkert allt of mikið þessa dagana...
7 ummæli:
Líst vel á nafnið! Gott að allt gengur vel og að litla krúttið sjái svona vel um móður og hvítvoðung.
Yndislegt að heyra hvað gengur vel Hrafnhildur mín. Og til hamingju aftur með nafnið. Það er mjög fallegt.
Hlakka til að heyra í ykkur og sjá litla kút svona þegar allir eru orðnir hressir og tilbúnir. Þú segir bara "hó"! :)
Bryndís frænka
Jakob Daði? hann mun allavega alltaf vera kallaður það á mínu heimili þangað til hann lærir það :P:P
en var hann ekki settur í ofsa flott og þægilegt handklæði sem hann vildi helst vera vafinn inn í það sem eftir lifði kvölds:P
Jú jú, hætti strax að góla þegar hann var vafinn inn í mjúka handklæðið sitt og þá sagði hann líka sín fyrstu orð "Daði og Anna eru best"
Eins gott...hann veit þá hvað er best fyrir hann drengurinn ;)
Fallegt nafn! Og mikid er hann sætur! Bestu kvedjur Sandra Sif
Langar svo að sjá fleiri myndir af litla lilla Jakobi sæta :)... ef þú hefur tíma :D - annars get ég líka beðið :)
Knús til ykkar
Bryndís frænka
Skrifa ummæli