Þá er maður endanlega búinn að tapa sér! Ég er orðin svo þreytt á þessu kvefi og sleni að nú er ég með hvítlauksrif í annarri nösinni, öðru eyranu, búin að smyrja hvítlauk ofan á brauð OG gleypa 1/2 rif! Niðurstöður þessarar tilraunar verða kynntar síðar.
Það varð aldreilis uppi fótur og fit hérna á laugardaginn. Þá kom í ljós að baðborðið sem við ætluðum að nota er ónýtt og að ekki var hægt að gera við skerminn á vagninum! Móðirin fór nánast á taugum og fór í fýlu. En auðvitað reddast þetta eins og annað. Ætlum að athuga hvort e-r annar getur gert við vagninn annars eru 2 í boði til láns og baðborðið er ekki heilagt! Þetta reddast... EN ÞETTA VAR BARA EKKI EINS OG ÉG HAFÐI HUGSAÐ MÉR ÞAÐ!
Þannig að nú ætla ég að eyða deginum í að athuga hvað hægt er að gera í þessu. Og hvíla mig. Með hvítlauk í nefinu. (Væri vís til að fara út með þetta....)
3 ummæli:
Einu sinni kom ég í eldhúsið til ömmu Jónu og þar sat hún með hvítlauk í báðum nösum...hafði verið í heimsókn í Bergholti en þar geysaði einhver ljót flensa sem hún ætlaði sko ekki að smitast af!
...í versta falli uppskerðu mikla andfýlu! hahahahaaa...
OOOG VÁÁ...ég er alveg að skilja þetta með að hlutirnar gangi ekki eins og maður hafði hugsað sér, það er sjitt pirrandi!!!!!
Æji, það er svo leiðinlegt þegar maður er búinn að ákveða eitthvað og svo gerist bara eitthvað allt annað. Mjög ergilegt.
Ég hló annars upphátt að þessu með hvítlaukinn :D Virkaði það vel?
Æ elsku amma Jóna...alveg týpísk saga af henni
Skrifa ummæli