Þá er drengurinn alveg búinn að skorða sig og samdrættir aukast dag frá degi! Það er allt hið besta mál og kemur honum vonandi bara sem lengst í átt að áætlunarstað áður en allt fer á fullt. Ég fór í skoðun í morgun og allt kom vel út eins og vanalega en ég fór eitthvað klaufalega upp af skoðunarbekknum og er alveg frá í bakinu núna. Spilar kannski inn í að við Jóna Björk fórum eitthvað að skottast í búðir á eftir... er allavega bara að bíða eftir grjónapokanum úr frystinum til að geta kælt bakið mitt.
Annars er svo sem ekkert nýtt. Jú, r-ið hjá Ísak er alveg komið og alveg hætt að vera fyndið! Bara mjög flott! Hann er að fara að leika veiðimann á samveru í leikskólanum á morgun. Og ekki hvaða veiðimann sem er heldur sko veiðimanninn í Rauðhettu! Gleymdi að spyrja hvort við gætum komið og horft á... Ég fór og horfði á hann á danssýningu í fyrradag, voða gaman. Hann hreyfði sig nú ekki mikið en reyndi eitthvað að dilla sér með. Tók svo virkan þátt í Fugladansinum og Superman-laginu! Allt voða krúttlegt. Ég hins vegar sat og svitnaði og svitnaði, var enn dáltið lasin nefninlega. Já, ég náði mér í kvefpestina hans Ísaks og var bara rétt að jafna mig almennilega í gær. Og þá hafði mér tekist að koma þessu á mömmu! Oh það er svo leiðinlegt að vera lasinn.
Hey! Og ég er byrjuð að prjóna litlar hosur fyrir litlar fætur... ætli ég klári?
Nokkrar nýjar myndir komnar inn, m.a. í bumbualbúmið
5 ummæli:
en spennandi. tíminn líður svo hratt. Þú ert velkomin að kíkja á okkur mæðgur ef þér leiðist :)
Bryndís
Það er svo gaman að lesa skrifin þín Hrafnhildur mín. Þú ert frábær penni. Hlakka til að sjá hosurnar í kvöld. Kristín strákaamma
Já það hlaut að vera, ég nefninlega reyndi að hringja í þig en þá hefurðu verið í skoðuninni ;)
Frábært að hann skuli vera skorðaður...veit ekki hvort ég ætti að óska þér til hamingju með samdrættina þeir eru svo djööööö pirrandi!! Annars erum við skorðuð líka og á sama stað hvað varðar samdrættina ;)
..::hvoooor skildiii verðaaaa á uuundaaaan::.. *jæks* þetta er ógurlega spennó ;)
Heyrumst fljótlega, gott að þú ert að jafna þig á lasinu!
Eruð þið komnar jafnlangt, Hrafnhildur og Guðrún?
Bryndís
Já er það ekki? Þar sem Guðrún gengur aldrei 40 vikur með sín....
Skrifa ummæli