JÆJA! Nú er barnið fullburða. Hann má samt ekki koma alveg strax þar sem ég tók við af Ísak í kvefpest og geri nú ekki annað en að snýta mér og bryðja hálstöflur. Ísak er búinn að vera heima síðan á þriðjudag, þá var hann með 40 stiga hita sem er mesti hiti sem hann hefur fengið litla skinnið. En hann klárar þetta vonandi um helgina og kemst í leikskólann í næstu viku. Ég ætla mér líka að klára þetta á stuttum tíma. Eins gott að drekka dáltið af engiferdrykk og spurning að borða bara hvítlauk?6. mars 2009
37 vikur
JÆJA! Nú er barnið fullburða. Hann má samt ekki koma alveg strax þar sem ég tók við af Ísak í kvefpest og geri nú ekki annað en að snýta mér og bryðja hálstöflur. Ísak er búinn að vera heima síðan á þriðjudag, þá var hann með 40 stiga hita sem er mesti hiti sem hann hefur fengið litla skinnið. En hann klárar þetta vonandi um helgina og kemst í leikskólann í næstu viku. Ég ætla mér líka að klára þetta á stuttum tíma. Eins gott að drekka dáltið af engiferdrykk og spurning að borða bara hvítlauk?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Keyptuð þið fuzzy? Við Ásdís keyptum þannig - reyndar bara 6, held að 12 sé mjög fínt, en við keyptum þær beint af fuzzybunzstore.com. Sólveig Kristín er auðvitað enn að nota sínar, enn ekki vaxin upp úr þeim (héldum að þetta myndi passa þannig að ég gæti fengið þær á þessum tíma...). Ég var einmitt á leiðinni að kaupa viðbót. Best að kíkja á ebay!
Kv. Bryndís
Nei þetta heitir Natures Love! Og á að duga á 3-15 kg! Ég er allavega spennt að prófa.
Hrafnhildur
ahhhh JÁ, þetta er að verða búið...ég verð mikið fegin ;)
Ég er svo óumhverfisvæn að ég ætla bara að nota svona venjulegar einnota!
Æjæjæj...það er ekki gott að þú sért líka orðin svona veik :(
Annars líst mér vel á þetta með taubleyjurnar hjá þér...um að gera að prufa ;)
Láttu þér batna :)
Skrifa ummæli