
Jebb, nú er sko stutt eftir! Fórum til ljósunnar í dag og bumban hefur sigið um ca 2cm þó svo að ég finni það ekki sjálf og finnist ég vera með barnið alveg uppí koki! Kannski mældi hún e-ð öðruvísi, ég get ekki alveg legið almennilega á bakinu út af grindinni svo þetta er alltaf bara svona sirka hjá okkur. En það væri snilld ef hann er kominn vel ofan í grindina, og ég er líka meira á snyrtingunni verð ég að segja... og ekki bara til að snýta mér!! Og allt annað er í góðu lagi nema kannski að ég hef þyngst of lítið sl 3 vikur...enda hef ég verið svo lystarlaus í þessum veikindum. Allavega ekki borðað fyrir TVO eins og ég gerði áður hehe.
Já, nú er bara að fara að pakka í töskuna og gera sig klára. Ég er samt ekki alveg nógu afslöppuð fyrir þessa fæðingu eins og ég vildi vera. Hefði viljað vera alveg frísk ef ég færi nú af stað fljótlega. En ég fékk sýklalyf við kinnholubólgunni sl þriðjudag og það virkar nú eitthvað hægt... En ég er nú eitthvað betri af verknum en kvefið er allt fast oní mér og uppí mér og allt um kring. Bleeee...
En nú erum við komin með vögguna, fáum bara lánaðan vagn og baðborðið bíður betri tíma! Allt reddí og sjáum nú til hvort hann kemur þegar pabbinn er að stjórna tónleikunum sínum.... Ætla að biðja pabbann að taka bumbumynd í dag og setja inn. Mældi í morgun og hún er 107cm allan hringinn! Það er assk...gott bara enda ekkert grín að snúa sér í rúminu! Eða koma sér upp úr sófanum!
5 ummæli:
Hæ Hrafnhildur mín. Það er ótrúlegt hvað maður hefur mikinn leyndan kraft þegar kemur að þessu. Ég er sannfærð um að undanfarin veikindi munu ekkert trufla þig - þetta á eftir að ganga eins og í sögu. Æ hvað þetta verður gaman, njótið fæðingarinnar í botn! Ásdís frænka
Rosalega ertu sæt Hrafnhildur - æðisleg bumba, þú lítur svo vel út.
Sjáumst kannski í vikunni - annars bara gangi þér vel og segi eins og Ásdís: Njótið!!!
Bryndís frænka
Þú ert og verður yndi hverrar tengdamóður yndislega Hrafnhildur mín.
Æ þið eruð sætar
jeij...þetta er svo spennandi!
Skrifa ummæli