Nú eru bara 8 vinnudagar eftir áður en ég fer að taka því alvarlega rólega! Enda
komin með fullt af samdráttum (þó engir verkir hjúkket) og bara lúin og þreytt. Held að krílið hafi nú eitthvað misskilið þetta með að fara að skorða sig því nú finnst mér hann liggja þversum síðan í gær og það er aaaaaansi spes tilfinning! En ég er farin að undirbúa mig í huganum fyrir væntanlega fæðingu, hugsa mikið um hvernig eigi eftir að ganga og er að æfa mig að temja mér jákvæðar hugsanir, fékk lánaðan geisladisk frá Bryndísi frænku sem kallast "HypnoBirthing" og ætla að hlusta á hann til að vera afslöppuð og fín. Allavega í huganum, svo sjáum við hvað setur. Ég er allavega viss um að þetta gengur hraðar en síðast og stefni á að eiga í vatni ef við eigum kost á herbergi með potti. Sko tæknilega séð gæti þetta gerst eftir mánuð!!! Sæll!Sl föstudag hvarf ég nánast 13 ár aftur í tímann og hitti gamla bekkinn úr Kvennó. Það var svo hryllilega gaman! Yndislegt að sjá þessar stelpur aftur og sumar hef ég bara ekki séð í 13 ár! Þetta er svo furðulegt, við vorum hreinn stelpubekkur og það myndaðist ekki EINN saumaklúbbur! Enda mjög ólíkar týpur og þess vegna svo rosalega gaman að sjá allar aftur, allar eitthvað svo eins en samt náttúrlega mikið gerst! Vonandi líður ekki svona langt þar til við hittumst aftur.
Setti inn myndir...endilega kvitta það er svo gaman
4 ummæli:
Flottar myndir, bumban orðin geðveikt stór verður gaman að fylgjast með hvar þetta endar, hehe.
Veistu ég er ekki frá því að þú sért "bumbustærri" en ég!!! Hef reyndar aldrei verið neitt með RISA kúlu þótt mér líði þannig ;)
Mánuður segirðu...ég ætti kannski að byrja að undirbúa mig eitthvað!
Ji, hvað þú ert sæt með bumbuna þína :)
Mæli sko með vatnsfæðingu. Ekki spurning. Yndislegast í heimi og geimi.
Gangi þér annars bara rosalega vel með þetta allt. Njóttu þess að slappa af og undirbúa þig.
Kv.
Inga Rós
Vá, engin smá kúla :)
Bíð spennt eftir að hitta bumbulíus :)
Skrifa ummæli