23. febrúar 2009

Helgið

Nú er r-ið að detta inn hjá Ísak! Og eins og vanalega fer hann "aftanað" hljóðunum, byrjar að nota þau aftast í orði og í miðjunni og síðast fremst í orði. Hann er með svona "enskt" r aftast í orðum núna en tungan fer sko út og suður og upp og niður og allan hringinn þegar hann segir eitthvað sem byrjar á r! Dáltið fyndið eins og er en verður ekki sérlega fyndið ef hann festist í því svo talmeinafræðingurinn er mjög meðvituð um þetta að sálfsögðu.

Við áttum annars snilldarhelgi. Fögnuðum 60 ára afmæli Ólu á föstudaginn, reyndar sitt í hvoru lagi; við Ísak vorum milli átta og níu og Maggi kom svo upp úr hálf tíu. Afi Halldór var veislustjóri og Ísak fannst hann standa sig rosa vel og klappaði fyrir öllu sem hann sagði. Ég gerði gloríu og tók GÚLSOPA af hvítvíni. Hélt ég væri að taka vatnsglasið mitt og mér brá svo að mér hitnaði allri í framan og fannst hálsinn vera að brenna! Já, langt síðan maður hefur smakkað'a! Við hlógum ægilega mikið en ennþá meira þegar konan sem átti glasið kom og spurði um það og við réttum henni það bara si svona!
Á laugardaginn var svo fiðlutími hjá Ísak og rosa gaman að fylgjast með hvað hann er sperrtur og tekur vel eftir. Honum finnst reynar ekkert spes þegar Þórdís kennari er að setja fiðluna undir hökuna á honum en annars rosalega duglegur og glaður í tímunum. Hann er nefninlega ekki vanur að vera svona frjáls í hóp, er yfirleitt allur í kerfi. Svo fór hann í heimsókn til Tómasar bestavinar og naut þess í botn. Mamman byrjaði að þvo föt á bumbu-ungann um kvöldið og er enn að! Við eigum allt of mikið af fötum í ungastærð, það er nokkuð ljóst. Svo í gær tókum við því bara rólega, Ísak fór aðeins út á pall og hoppaði í sandkassanum sínum sem er fullur af vatni. Ég hjálpaði Jóhönnu að sauma eitt stykki kjól og bakaði bollur...já bíddu tók ég því ekki rólega?? Svo fórum við í mat til tengdó um kvöldið og ræddum brúðkaupsplön Gunnars og Jónu. Gaman gaman.

Ooooooog eftir klukkutíma fer ég í strípur og klippingu og ég GET EKKI BEÐIÐ! Er búin að vera með "ljótuna" allt of lengi og finnst ég bara hræðileg um hausinn..... en ekki meir Geir, nú skal það lagað.

Bolla bolla

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ömmu Klistínu finnst æðislegt að lesa um framfarirnar og hún hlakkar tryllt til að koma í fiðutíma. Ekki síður spennandi að sjá R-útgáfunu í nafninu mínu í næsta hittingi.

Unknown sagði...

ohhh *öfund* mig langar líka í klipp og stripp!
Stefni ótrauð á að skvera það um miðjan mars...get ekki verið eins og herfa um hausinn þegar kríli mætir, það er alveg á tæru! ;) hehe

Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega, mjööööög mikilvægt að líta sem best út í fæðingunni. Allavega gerir maður þetta ekki rétt eftir að krílið er komið!
Hrafnhildur

Nafnlaus sagði...

Ég klikkaði á þessu, var ekki búin að fara í klipp fyrir fæðingu - en ég meina, er svolítið lummuleg á þessum örfáu myndum með lilluna glænýja... en ég var allavega búin að fara í vax hahaha :D

Bryndís hrænka