
Vika 33
Þú ert örugglega komin með mjög myndarlega kúlu og naflinn stendur eflaust út. Ef til vill ertu núna að hugsa um hvort mögulega komist bara meira fyrir þarna inni! [ertu að grínast? Var ég orðin svona stór með Ísak? Óléttubuxurnar passa ekki einu sinni!]
Maginn er nú orðinn mjög þungur. [hlunkur]
Blóðmagnið hefur aukist mikið til að uppfylla blóðþörf legsins, fylgjunnar og barnsins.
Barnið hefur nú minna pláss til að hreyfa sig því það er búið að stækka. Þrátt fyrir þetta er það jafn virkt og áður, þó svo að þú finnir ekki eins mikið fyrir því. [Ég finn jafn mikið fyrir því, þetta er svona svipað eins og það sé grafa þarna inni að færa innyflin til og þess á milli kastast keilukúla hægri vinstir...keilukúla með útlimi sem reyna að gera gat....]
Allt sem barnið þarfnast núna er meira af efninu „surfactant“ sem þarf að þekja lungun svo og meiri fitu. Það á mjög mikla möguleika á að lifa af ef það myndi fæðast núna. Barnið er nú farið að blikka augunum og byrjað að fókusera á hluti nálægt sér s.s. eigin útlimi og naflastreng. Barnið vegur nú um 1,9 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 29 sm.
Fótur, hönd eða olnbogi barnsins getur stundum myndað kúlu á maganum á þér. [sem ég segji, reynir að brjóta gat...veit hann ekki að hann á að fara aðra leið út?] Ef barnið er með hiksta (sem er alveg eðlilegt) er hægt að greina það sem reglulegar, taktfastar hreyfingar. [alltaf um kvöldmatarleytið]
3 ummæli:
Ótrúlegt hversu stutt er eftir! Svo gaman :)
Bryndís frænka
Mikið ofboðslega er gaman að lesa skrifin þín Hrafnhildur mín með lítinn brimbrjót innanmaga. Amma Klistín
Hei ég var búin að kommenta á færsluna á undan! Hvert fór það eiginlega??
Eníveis ég var bara að furða mig á því út í hvað við værum eiginlega að fara miðað við lesninguna um stjörnumerkin ;) hihi...
Já það er merkilega stutt eftir! Tíminn er hreinlega búinn að þyrlast áfram!
En hei......ég kem kannski helgina 20-22 febrúar, amma Steina á 85 ára afmæli ;) *gaman að hittast með kúlurnar okkar*jeij*
Skrifa ummæli