Þá eru 4 páskaegg komin norður og niður og bara 1 eftir. Settumst niður í gær eftir vel heppnaða páskamáltíð með brúnni sósu og allt og bókuðum ferðalögin í sumar. Fyrst Frakklandsför 26.júní í viku og svo heimferð 12.júlí í rúml. 2 vikur. Þetta verður viðburðaríkt og skemmtilegt sumar með 3 brúðkaup og 2 utanlandsferðir (3 ef Ísland telst utanland...) og Gotlandsreisu þangað sem ég hef aldrei komið. Hef reyndar ekki komið til Tallin eða Nice heldur ef út í það er farið.
Svo lítur út fyrir að Kristín sé að mæta á svæðið fljótlega og er hún meira en velkomin! Ekki leiðinlegt að fá góða gesti. Vonandi pantar hún sem fyrst.
Bara 4 daga vinnuvika framundan og rétt að skála fyrir því!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli