3. mars 2005

Börnin eiga að erfa landið. En ég erfi líka silfurhjarta med tönnunum hans pappa í frá ömmu.
CLAIRE, 5 ÁRA

Margir í minni fjölskyldu eru dauðir og hanga á veggnum.
TOBIAS, 5 ÁRA

Amma mömmu minnar lifði á risaeðlutímanum og heimspekitímanum. Amma mín er dáltið yngri. Hún hafði aldrei séð banana fyrr en hún varð tvítug.
ROSEANNA, 7 ÁRA

Í gamla daga sagði mann "Ég elska þig" við fólk. Nú þarf maður sem betur fer ekki að leggja svo mikið á sig. Ég held að það sé nóg að segja "Komdu hingað!"
HOLGER, 8 ÁRA

Mömmur eru alveg eins og pabbar, nema með aðeins meiri brjóstahaldara.

Mamma mín segir að ég fari í taugarnar á henni þó ég standi alveg kyrr.
SIGURD, 6 ÁRA

Pappi minn elskar mig rosalega mikið. Hann elskar mig svo mikið að hann öskrar á mig í búðinni.
STINA, 6 ÁRA

Mamma mín gerir aldrei neitt rangt. Nema þegar löggan stoppaði okkur og hún grét og sagði að við þyrftum svo mikið að flýta okkur því að við værum að fara á barnaspítalann, þó að við værum bara að fara í Hagkaup að kaupa gos.
TOMAS, 9 ÁRA

Smábörn eru rosalega mjúk. Ég veit ekki úr hvernig skinni þau eru gerð, en það má allavega þvo það.
TILDA, 6 ÁRA

Oscar slæst mjög mikið. Hann sló sjálfan sig í augað svo að hann fótbrotnaði.
DANIEL, 7 ÁRA

Þegar Rasmus segir "fura" í staðin fyrir "fyra" fær maður svona tilfinningu í brjóstið. Kannski er það ást. Ég veit það ekki.
CAROLINE, 7 ÁRA

Að finna sér maka getur tekið mjög langan tíma. Maður byrjar kannski að leita þegar maður er 10 ára og svo finnur maður engann fyrr en maður er nítján.
THOMAS, 9 ÁRA

Svo flaug Jesús upp í himininn, og þar hitti hann Jesús og situr nú við hægri hlið sjálfs síns. Það er ómögulegt að skilja þetta og ekkert til að hafa áhyggjur af.
STINA, 8 ÁRA

Jesús var ekki með neina vasa. Bara bleyjur. Síðan gekk allt voða illa.
KEVIN, 8 ÁRA

Heilagur Andi er eiginlega Jesús í dulargerfi.
RUNAR, 8 ÁRA

Engin ummæli: