7. mars 2005

Nýjar myndir

Bætti við 3 nýjum albúmum undir krækjunni "Nýjar myndir; Skrámur, jan-feb og Karlstad en þar eyddi ég helginni með góðum vinkonum. Tók lestina og átti yndislega 2½ tíma með einum 4 ára sem samkjaftaði ekki allan tímann. Ef ég rétt leit í bókina eða út um gluggan var hann strax farinn að kalla "hallo". Á endanum gafst ég upp og spjallaði við hann alla leiðina um allt milli himins og jarðar. Hann hét Jamie og átti bleika kanínu. Hann elskaði hana allt lífið og spurði hvort ég elskaði "Skran" allt lífið! Svo spjölluðum við heillengi um krókódíla, og slöngur. Hann var nebblega í Gambíu og klappaði krókódíl! Þetta var reglulega spennandi samtal og allir í næstu sætum fylgdust spenntir með.

Til heiðurs Jamie legg ég til nokkur góð barnatilmæli í viðbót!

-Það er ekkert erfitt að vera í jólasveinaskólanum. Maður lærir að drekka glögg, vera góður og segja svona: "hóhóhóhó". Það er miklu erfiðara að vera múslimi.
BENNY, 7 ÁRA

-Jesús fæddist á aðfangadag. Síðan dó hann á aðfangadag. Svo hann dó þegar hann fæddist nema aðeins seinna.
SOFIA, 7 ÁRA

-Svíar tala sænskara en þeir sem tala önnur mál.
HAMPUS, 8 ÁRA

-Á einhvern hátt hefur Noregur fests við Svíþjóð. Ég veit ekki hvort þeir sleppa takinu einhverntíman.
ALMA, 8 ÁRA

-Hundurinn minn er hálfnorskur, en hann er samt frekar fallegur. Hann skilur frekar mikið miðað við hvernig það er vanalega ef maður er hálfnorskur.
ALEX, 8 ÁRA

-Afi vill ekki hafa rifrildi. Sérstaklega ekki á svæðinu í kringum eyrun. Þá fær hann vöðvaverk í höfuðið.
TONY, 6 ÁRA

Stundum verð ég rosa þreytt þegar afi segir mér sögu. Hann hættir eiginlega aldrei.
VANESSA, 8 ÁRA

-Ein saga er um Hans og Grétu sem búa í piparkökuhúsi. Þar er norn sem vill éta þau. En hún vill þau ekki hrá svo hún grillar þau fyrst. Það er skemmtilegt.
KATHRINE, 7 ÁRA

-Litlasystir Minas er alltaf full af banönum.
MARIA, 5 ÁRA

-Besti vinur minn er ekki með neinar tennur. Ég er bara búin að missa tvær. Við ætlum að gifta okkur, en ekki strax. Við ætlum að bíða þangað til við fáum nýjar tennur.
AGNETHA, 6 ÁRA

Engin ummæli: