Ég elska að hafa þennan snjó! Loksins kom veturinn:-D Ég hef hins vegar ekkert heldur haft á móti því að hafa sólina og góða veðrið sem hefur ríkt en langað mikið að komast í snjóinn í Svíþjóð og finna 20 stiga frost bíta í tær og kinnar. Og nefhárin frjósa við innöndun haha!
Ég er búin að vera í svefnprógrammi eins og sumir vita. Til að bæta lélegan svefn. Ég hef lengi lengi átt mjög erfitt með að sofna og sofið illa, var alltaf að vakna og var þá kannski aftur lengi að sofna. En ég byrjaði í atferlismeðferð í janúar og hefur gengið nokkuð vel svona miðað við að vera líka með ungabarn sem þarf stundum smá umönnun og mann sem hrýtur. Allavega er ég oftast fljót að sofna núna. Ég er hins vegar ennþá að vakna aðeins of oft en það er oftast út af truflun. Þó ekki alltaf og það er frekar pirrandi að vera glaðvakandi um miðja nótt meðan allir hinir sofa! Ég get ekki skilið t.d. að fólk missi bara af mörgum klukkustundum og viti bara ekki af sér! Þegar það gerist hjá mér, að ég sef "eins og steinn" þá verð ég svo hissa þegar ég vakna að ég get ekki sofnað aftur haha! En ég er mjög fegin að ég ákvað að fara í þessa meðferð í stað þess að biðja um svefntöflur þó tími hjá sálfræðingi sé vissulega ekki gefins þessa dagana!
Allt ágætt að frétta af litlum mönnunum Ísak og Jakob. Ég fór reyndar með kobbann á vakt heilsugæslunnar í gær og beið í næstum 2 tíma! Dísúss!!! Hann er með vökva og roða í eyrum og á að koma aftur í tékk á föstudaginn. Hefur verið að fá hita og pirraður dálítið lengi. Ísak var að veikjast í dag með hita og kvef. Ætli við höldum honum ekki heima á morgun en þá missir hann samt af sellótímanum sínum sem er miður. Vonandi gengur þetta hratt yfir.
Í fréttum var þetta helst. Endilega kvitta
4 ummæli:
Kvitt;o)
Jóna Björk
græddur er eyddur eyrir í þennan sálfræðikostnað. Mun betri svefn fæst án svefntaflna. Gott að sjá að svefninn svífur á réttar brautir.
amma Ísaks og Jakbos
Græddur er eyddur eyrir í þessum sálfræðikostnaði. Til hamingju, sígandi lukka er best.
amma Ísaks og Jakobs
Æi lilli nabbi bara lasinn - og stóri. Mæli með Domus medica og barnalæknavaktinni þar. Maður pantar tíma samdægurs (þarf að hringja að mig minnir frá 9:30 til að fá tíma fyrir 16, en frá 12:30 til að fá á vaktinni hjá þeim eftir 16. Þá er engin svona leiðinleg bið. Ef maður hringir nokkuð á slaginu fær maður nú almennt tíma :)
Heyrumst fljótt með hittin!
Kv. Bryndís
Skrifa ummæli