15. mars 2010

Halló! Nú er ég búin að eyða hálfu kvöldinu í að koma strákunum í rúmið. Ísak þarf tímann sinn með allar sínar seremóníur og Jakob eyddi dágóðum tíma í að æfa sig að standa upp í rimlarúminu. Jafnóðum og ég lagði hann niður og sagði höstug "sofa" velti hann sér og stóð upp aftur. Mér fannst hann svo sætur að ég gat ekki almennilega verið reið en eftir hálftíma var þetta samt hætt að vera fyndið!
Ég fór með þá báða í klippingu áðan. Ísak kominn með sumarklippingu og Jakob mun snyrtilegri en áður. Krullurnar ekkert farnar en ekki lengur eins og Tobbi trúður. Fínt að vera orðinn eins og stór strákur þegar 1 árs afmælið nálgast.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þeir eru svo guðdómlegir. Amma hlakkar til að vera hjá þeim í kvöld. amma mont