28. janúar 2009

Þetta eru merkilegir tímar sem við upplifum núna! Maggi var duglegur að berja í pottlok og nú bíður maður bara spenntur eftir hverjum fréttatíma..já m.a.s. ÉG!

Ísak gekk um gólf í fyrrakvöld sönglandi: "vana ídisjón! Vana ídisjón....! Hmmmm.... held það sé reyndar að því það var spilað svo oft í Spaugstofunni á laugardaginn. Við vorum í bústað um helgina í Húsafelli, alveg frábært að komast út úr bænum. Hjalti og Vala og Daði og Anna gistu eina nótt og ma og pa komu í kaffi og mat. Við gerðum nú ekki mikið nema hafa það gott, fórum í pottinn, sund í Borgarnesi, átum og átum og átum og rétt skruppum út í míní göngutúr en það var líka svo svakaleg hálka að það var alveg verjandi! Þessi janúarbústaðarferð okkar er orðinn árviss og voða gott að komast eitthvað saman. Ísak finnst auðvitað æðislegt að vera svona í fríi með foreldrum sínum þó hann tilkynni okkur líka á hverjum degi að það hafi verið gaman í leikskólanum! Nú er málþroskinn alveg á trilljón og hann samkjaftar ekki og segir okkur sögur og ævintýri á hverjum degi. Allt í einu fór hann að nota hljóðin Þ og Ð sem líka leiddi af sér að R-ið breyttist úr að vera e-s konar Z-hljóð inní og aftast í orðum yfir í að verða Ð. Svo æfum við okkur reglulega með K-ið og G-ið og nú í morgun heyrði ég hann nota það af sjálfsdáðum svo ætli það sé ekki að koma líka bara!

Ætla að setja nokkra myndir inn, endilega skoðið þær! Nú er kominn tími til að hugsa sér til hreyfings, fara að sækja Ísak og í kvöld ætla Torfi og Júlía að koma og borða með okkur. Tilgangur þeirrar heimsóknar (fyrir utan að hitta þau og Unu Ragnheiði) er að fá óléttuföt hjá Júlíu....skil ekki alveg hvernig ég var klædd með hann Ísak þar sem báðar óléttubuxurnar mínar eru komnar í síðasta gat.....

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehehehe!
Bumbubúinn er kannski fyrirferðameiri og plássfrekari heldur en Ísak var ;-)

Unknown sagði...

Gott og gaman hjá ykkur í bústaðnum :)

...hihi ég er ENNÞÁ í gallabuxum sko!

Hrafnhildur sagði...

Ennþá í gallabuxunum!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!