4. janúar 2009

Kominn janúar!

Nýja árið gekk átakalaust í garð. Ísak sat með I-podinn í eyrunum í hnipri í sófanum meðan mestu lætin gengu yfir. Litla skinnið. Svo tókst okkur nú að fá hann til að dansa aðeins við okkur eftir miðnætti og þetta var auðvitað hið besta gamlárspartý! Mín tók m.a.s. þátt í "leikaleiknum"! Hið sögulega atvik átti sér stað þetta kvöld að tveir talmeinafræðingar voru staddir undir sama þaki án þess að hafa hisst áður!!! Það er ótrúlegt og var að sjálfsögðu fest á mynd. Við skveruðum okkur heim um 1 en mér gekk alveg hræðilega að sofna og endaði sitjandi í sófanum til að reyna að losna við fótapirringinn grrrrr...... Nýársdagur var því frekar myglaður en við fórum auðvitað í mat í Fiskó og fengum að venju humar og heitt hangikjöt... ekki saman samt!

Nú er Ísak kominn með e-a flensu, búinn að vera með hita síðan í fyrradag og í nótt var hann sífellt að vakna og heimta að fara á fætur. Gubbaði svo um 6 í morgun og hefur verið hinn hressasti síðan! Ótrúlegt; allt það dót sem hann fékk í afmælisgjöf og jólagjöf liggur nú óhreyft inni í herbergi en hann hefur undanfarna daga bara leikið með dót sem ég var búin að taka og setja í poka inní geymslu því ég taldi það orðið of "barnalegt". Þetta er hús sem maður setur mismunandi formaða kubba í, plastdollur til að raða upp í turn og leikfangasími sem spilar eitthvað lag sem hann segir uppáhalds lagið sitt! Jæja, hann dundar sér allavega á meðan:D

Úff, bara 2 dagar eftir af fríinu:( Spennandi að vita hvernig gengur að vakna á morgnanna núna. Ísak vill bara vera í fríi og spyr okkur til öryggis á hverjum morgni hvort það sé ekki jólafrí og hann þurfi ekki að fara í leikskólann. En það verður nú gott að komast aftur í fastar skorður og ég er m.a.s. farin að týna niður jólaskrautið. Fyrirgefðu mamma.

Búin að bæta við helling af myndum, endilega kvittið fyrir innlitið:D

3 ummæli:

Unknown sagði...

Gleðilegt ár :)

ohhhh...fótapirringur, mikið kannast ég við það...ömurlegt og maður getur næstum orðið geðveikur!!!

Annars er ég búin að dunda við að skoða helling af nýjum myndum :) skemmti mér hið besta og var mikið glöð að sjá þarna eina bumbumynd ;)

Hér var ansi sprengjuglöð Tinna um áramótin en það fór eitthvað minna fyrir kátínunni þegar út var komið á miðnættinu ;) ...betra að vera bara inni í örygginu...

Heyrumstum :) bið að heilsa...

Nafnlaus sagði...

Kvittkvitt :) Sætar myndir :)

Nafnlaus sagði...

KVittun :D