15. desember 2008

hah


Ég er búin að vinna minn síðasta dag á stofunni! HAH! Við komum hins vegar heim með haug af dóti sem þarf að fara í gegnum og finna svo geymslustað:S Maggi og Ísak komu og hjálpuðu mér að pakka þessu smáræði en þar sem geymslan okkar er ansi full er spurning hvað hægt er að gera við þetta... Og ég NENNI EKKI að fara í gegnum þetta og flokka og sortera svona þegar maður vill helst vera bara í jólakortunum og smákökunum...

Við foreldrarnir erum að þreyta frumraun okkar í jólasveinamálum. Stekkjastaur kom og gaf Ísak glerkúlu með jólabangsa inn í sem snjóar á þegar maður hristir. Hann vildi ólmur sýna Jökli kúluna og tók hana með í gistinguna. Hún brotnaði. Það var víst ekkasog og mikil sorg yfir því. Daginn eftir hittum við Giljagaur á jólaballi og Ísak var svo hugrakkur að biðja hann um nýja kúlu. Sem þurfti náttúrulega að redda.... Maggi fór í þau mál, kom heim með nýja kúlu sem hann setti upp á fataskáp meðan hann fór úr skónum. Hún datt í gólfið og brotnaði!
Mamman fór svo í gær og kom heim með heila kúlu sem vonandi á lengri lífdaga... Mér finnst þetta samt voða gaman, þetta sveinka-mál og gaman að fylgjast með vaknandi áhuga Ísaks á þessu.

Litla barnið vex og vex. Kúlan orðin nokkuð stór og maður er farinn að finna fyrir miklu brambolti þarna inni. Eina nóttina í vikunni held ég barasta að barnið hafi brotið sér leið um allan kviðinn og stækkað um 10cm og 5 kíló í leiðinni!!! Það eru sko ekki minni læti en þegar Ísak var að brölta þarna inni. Grindin er nokkuð góð en lífbeinið skammar mig á hverjum degi.... bara fyrir að labba, standa upp og setjast... Ísak og Maggi eru svo farnir að syngja fyrir litla barnið á hverju kvöldi og svo kyssir Ísak magann og býður góða nótt. Nú segir hann að þegar litla barnið komi þá ætli hann með því í bað! Hmmm... verða kannski vonbrigði ef það gerist ekki strax og það kemur út? Já, þetta er spennandi

Jæja, kominn svefntími. Svefninn er enn í rugli hjá mér, sef stundum smá og stundum minna. Skrýtið hvað maður venst því að vera svefnvana! En mér finnst þetta auðvitað alveg glatað. Verður gott að komast í jólafrí. Og svo á ég mánudagana fría héðan í frá:D

2 ummæli:

Anna Margrét sagði...

Vueih vueih vueih, til hamingju með það að vera komin í kósýheit!! :)

Þetta er sko heppið litlabarn að eiga Ísak sem stóra bróður :) Hann ætlar augljóslega að vera voðalega góður stóri bróðir.

Nafnlaus sagði...

Það er mjööög sniðugt og skemmtilegt að taka allt svona dót og drasl sem maður á og pakka því inn í pakka með jólagjöfunum. Þannig verða pakkarnir skemmtilegir og maður losnar við allskonar drasl og dótarí:D