Þá er jólakvefið mætt! Vonandi bara fer það sem fyrst, verst ef ég þarf að "feika það" á tónleikum Fílunnar á morgun! Ákvað að vera heima í dag enda með mjög alvarlegt slen og beinverki. En þetta er nokkuð árviss viðburður og verður vonandi ekki meira.
Annars erum við bara hress. Nú er aðeins farið að róast hjá Magga og við sjáum hann meira. Þá þarf að fara að klára jólagjafainnkaup og mig langar að baka smá, allavega gera piparkökur með Ísak. Við sáum svo flottar piparkökur í bók sem voru með íspinnum í til að halda á þeim:) Hann er voða spenntur yfir þessu. Nú er aðal-leikurinn að taka fram allt eldhúsdótið (matinn og áhöldin) og leggja á sófaborðið og fara í kokkaleik. Þá er hann kokkurinn og ég stelpan og ég á að kaupa ALLAN matinn og það er bara tekið við greiðslum með korti sko. Hann fattar engan veginn þetta með peninga haha enda aldrei séð það eiginlega.
Svo er hann óendanlega spenntur yfir Stafakörlunum núna, fékk bókina í afmælisgjöf og svo diskinn í gær og vill ekki sleppa honum! Gaman að því.
En nú ætla ég að leggja mig áður en ég drösla mér í sturtu og svona. Erum nefninlega að fara að gera konfekt á eftir með tendgdafjölskyldunni. Verður án efa mjög gaman:)
1 ummæli:
Vonandi hressistu fljótt og fallega, ekkert spes að vera með slen og hor!
Annars kom ég við hérna í gær og skoðaði allar nýju myndirnar en ég bara gleymdi að kvitta!
Ísakinn bara krúttlegastur í eldhúsleik...er þetta kannski eitthvert 3ja ára leikdæmi? Tinna er nefninlega alltaf að elda eitthvað gómsætt í eldhúsinu sínu ;)
Skrifa ummæli