
...fyrir afmæliskveðjurnar í dag allir!!! Alltaf svo æðislegt að fá svona margar kveðjur! Ég er nefninlega pínu ömurleg að muna svona sjálf og skila yfirleitt kveðju daginn eftir... kannski ekki alveg innan fjölskyldunnar en svona utan hennar.
Ég fékk geggjað flotta myndavél frá strákunum mínum. Fyrst opnaði ég pakka frá Ísak; það var lítil og frekar ljót taska! Hvað átti ég að gera við svoleiðis? Svo opnaði ég pakka frá Skrámi; það var föndurdót!Nei, bíddu! Eitthvað svona til að merkja blaðsíður? Ekki að fatta... svo kom myndavélin frá Magganum og þá small hitt náttúrulega í rétt hólf í heilabúinu. Mændjú þetta var kl rúmlega 7 í morgun með augun hálfopin. Föndurdótið var sem sagt minniskort í vélina. Hef svo verið að kynna mér hana í kvöld og sýnist hún ansi geggjuð. Þetta er sko Canon Iscus 950 IS!!! 8 mega pixels, 4x linsusúmm og já eitthvað rosa töff!
Annars er horið ekkert að minnka og litatilbrigðin ansi flott;) Þar sem Maggi þurfti að vinna seinnipart og allt kvöld fór ég bara í Fiskó og lét dekra við mig þar. Og nú ætla ég snemma í háttinn, svo ég geti vaknað snemma í fyrramálið eins og amma mús segir einmitt!
2 ummæli:
Til hamingju með afmælið elsku frænka!
Knús Bryndís frænkulíus
Elsku Hrafnhildur mín. Til hamingju með afmælið um daginn. Ég hugsaði sko til þín frá Kenýa og hefði sent sms ef ég væri með númerið þitt! Þarf að bæta úr því. Kveðja, Ásdís frænka
Skrifa ummæli