Þá er haustkuldinn mættur brrrr... Það er svona blanda af notalegheitum með kertaljósi á kvöldin, og söknuði eftir sumrinu. Fyrsta haustkvefið komið í mig með tilheyrandi kinnholubólgum og sársauka ojbara. En það besta við akkúrat þetta haust er ferðin til Minneapolis í lok október með Ingunnarskóla. Ég sem hef aldrei komið til USA er bara að fara í Mall of America og læti! Til að byrja með fannst mér vika allt of langt þar sem aðeins þrír dagar eru sjálf námsferðin. Hvað átti ég að gera restina af tímanum? Svo held ég svei mér þá að það verði bara alveg nóg að versl... ég meina gera! Reyndar er eitthvað erfitt að finna menningarviðburði finnst mér en eitthvað hlýtur að vera um að vera. Og svei mér þá ef ég get ekki verslað eitthvað lítilræði... sokkapar og spilastokk kannski? Ísak á nú afmæli í lok nóv og m.v. að ég verð að passa mig í Hagkaupum að kaupa ekki eitthvað handa honum í hverri ferð þá er eins gott að vera búin að skrifa lista yfir NAUÐSYNJAR. Reyndar hef ég aldrei verið þekkt fyrir mikla eyðslu en síðan Ísak fæddist á ég bágt með mig þegar kemur að e-u fyrir prinsinn!
Litli prinsinn fær loksins af fara aftur til dagmömmunnar eftir viku fjarveru. Það verður vonandi allt í lagi. Svo bara ákveðum við það að hann komist inn á leikskóla fyrir jól! Hann er búinn að vera duglegur í pössun hjá bæði uppáhaldinu afa Halldóri og Jónu Björk frænku og svo auðvitað foreldrum sínum sem nú fá vonandi að vinna fulla vinnuviku:D
Og að lokum óska ég Guðrúnu frænku til hamingju með 4. prinsessuna sem fæddist á föstudaginn, á afmælisdegi systur sinnar!!!!
3 ummæli:
Blessuð vertu...þú getur eytt þessum fjórum dögum auðveldlega í mollinu og svei mér þá ef það eru ekki einhver söfn og slíkt þar inni líka. Systir mín fór þarna einu sinni og hún komst ekki yfir nema smápart af þessum ósköpum...og gangi þér vel að halda aftur af þér í þessu verðlagi sem að er þarna...og það rétt fyrir jólin. ;) híhíhí! ;)
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Hrafnhildur, hún á afmæli í dag. Húrra, húrra, húrraaaaaaaaaaaa
26. september 2007
Til HAMINGJU með afmælið, þú lengi lifi! Veit ekki hvort Jóna var búin að láta þig vita að við stefnum að frændsystkinahittingi hjá Stefáni og Hildu á laugardagseftirmiðdag. Vonandi komist þið og Ísak litli.
Skrifa ummæli