
Kommon! 27 heimsóknir á síðuna og ENGINN kvittar! Ég hlýt að skrifa um svona óáhugaverða hluti...
Það var gott að syngja í dag með öllu þessu góða fólki. Finn að ég er byrjuð að sakna þess. Samt er ég ekki alveg tilbúin að láta Ísak í pössun 2 kvöld í viku... þó það hafi nú ekki skaðað okkur systkinin nema síður sé.
4 ummæli:
Ég er ennþá hér Hrafnhildur mín, þó þú sért löngu komin heim frá Svíþjóð!
Kv.
Edda Björk
Já, ég viðurkenni að ég er orðin löt við að kommenta - kíki alltaf, en kommenta aldrei. Sorrí!
Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)
Ég tek undir að það hafi verið svo gott að syngja með í gær. Ótrúlega áhrifamikið.
Kóræfingarnar eru nú bara 1x í viku á mán.kvöldum frá 19:30 - 22:30.
Þið verðið að fá ykkur barnapíu maður! Það er toppurinn á tilverunni - að þurfa ekki endalaust (eða stundum) að kvabba á ömmu og afa!
Bryndís frænka
Já, ég verð að fara að syngja aftur!
Edda: Gaman að þú hangir ennþá inni..hehe. Ert þú með e-a síðu?
Kvitt!
Blessuð, gamla vinkona. Ég segi eins og annar, ég er skammarlega löt að blogga. Aðallega eru það allir þessir reitir sem þarf að fylla út sem letja mig. Svo kvartar maður sjálfur undan kommentaleysi :Þ
Smjútsj!
Skrifa ummæli