Bobb bobb bobb! Fyrsti í hlaupabólu kominn! Ísak samt sprækur sem lækur.
Vonandi verður það ekki slæmt, aumingja Jökull frændi var AGAlegur.
Við heimsóttum nýju dagmömmuna í dag. Hún á þrjá fiskitanka og tvo páfagauka. Já, ég sagði tanka, þetta kallast varla fiskabúr þegar þetta er komið upp í þessa stærð!
Heimsótti ömmu Ernu í dag. Hún fer sennilega ekki fram úr rúminu sínu framar. Hún brosti heilmikið og smellti m.a.s. kossi á Ástu. Vonandi tekur þetta ekki langan tíma þó manni finnist ljótt að hugsa svona en hún á bara ekki skilið að vera svona mikið lengur, þetta er búið að taka nógu langan tíma. Og auðvitað langt síðan amman mín hvarf og eftir varð bara þessi líkami í hennar mynd. Óréttlæti heimsins er stundum óskiljanlegt.
Best að koma hlaupabólunni í rúmið. Hann er afar upptekinn reyndar, er að marsera og skamma Græna bananann (Ávaxtakarfan). "Hep tú hep tú" hljómar allan liðlangan daginn.
Hægri snú!
3 ummæli:
Mér finnst einmitt svo fyndið að þó svo boðskapurinn í ávaxtakörfunni sé að leggja aðra ekki í einelti þá eru það heræfingarnar sem sonur minn er mest heillaður af. Hann þreytist sko ekki af að marsera fram og til baka.
Takk fyrir síðast og TAKK enn og aftur fyrir okkur, ómetanlegt og við erum sko afar þakklát skal ég segja þér :)
...átt samúð mína alla í sambandi við ömmu Ernu...ég á ekki til orð til að hugga þig en ég skil svo vel hvað þú ert að meina!
Heyrumst!
Takk fyrir það Guðrún mín. Þetta var sko ekkert mál og gott að geta gert eitthvað fyrir ykkur. Já, heyrumst!
Skrifa ummæli