15. júní 2007

Attílæ

Tölvan er komin í viðgerð sem betur fer. En ég hef reyndar alltaf notað gömlu í sambandi við vinnuna og er því að skrifa skýrslur á hana hérna heima núna. Hún getur nú alveg gert mann galinn! Í gær var hún 12 mínútur (já ég tók tímann) að opna eitt Word-skjal!!! TÓLF MÍNÚTUR!!! Það er eins gott að hafa nógan tíma og anda inn og út og telja rólega upp í 10 og svona. Og vera með tölvuna hennar tengdó til að vera á netinu á meðan maður bíður...

Ísak er að læra stjórnun núna. Heldur hann. Hann reynir að ráða og stjórna foreldrum sínum eins og hann getur en allt í góðu samt. Segir bara "toddu mamma/babbi" og vinkar okkur að koma eða reynir að taka utan um okkur og toga okkur á fætur. Svo segir hann Skrámi að koma og reynir sömuleiðis að lyfta honum upp. Sem hann ekki getur eða gerir einu sinni um millimetra. Skrámur þokast sko ekki nema hann sjálfur vilji. Svo er spurning hvað hann vill alltaf að við séum að koma og gera, það er ekki alltaf alveg ákveðið fyrirfram.
Lilli klifurmús og Mikki refur eru enn jafn vinsælir og rúlla stundum þrisvar á dag hérna. "Mahhna wuawa" er lang skemmtilegastur og reynir Ísak að herma eftir honum þegar hann hlær. Það er sko Mikki...

Við fórum aðeins að renna okkur á stóra róluvellinum hérna rétt hjá. Mér tókst að lokka Ísak í sandkassann eftir 15 ferðir í rennibrautinni og þar kenndi ég honum að búa til sandkökur nema hann skemmdi þær alltaf um leið. Ég þóttist verða voða leið og þá segir hann bara "attílæ" og horfir á mig stórum samúðaraugum!

Í kvöld ætlum við Maggi á Mr. Skallagrímsson með Indru og Ingólfi. Höfum eiginlega stefnt að því síðan síðasta sumar svo það er kominn tími til! Sýningin hefur fengið voða góða dóma og spurning hvort Benedikt Erlingsson fær Edduverðlaun seinna í kvöld? Maður brunar bara í bæinn til að sjá það. Edda-pedda segi ég nú samt.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Grímuverðlaunin... hu humm :)

Jæja, verðum að fara að hittast. Þau stærri að verða 2ja ára bara eftir eina og tvær vikur! Ó mæ segi ég nú bara. Freyja kann að segja "ammæli tuttugáttu núní". Lærir eins og páfagaukur litla skinnið :).

Það er enn svo mikið drasl hjá okkur eftir framkvæmdir aldarinnar á baðinu og því getum við ekki boðið ykkur heim strax, allavega ekki fyrr en í fyrsta í afmæli. Verður gaman þá.

Knús og kram
Bryndís frænka

Nafnlaus sagði...

Líst vel á þessa stjórnunar takta í drengnum ;) Hér er það einmitt Tinnan sem reynir að stjórnar ÖLLU og ef einhver er að reyna að gera eitthvað sem HENNI mislíkar þá segir hún bara "sambi, hættu sessu..." (skamm, hættu þessu...) og svo reynir hún stundum að stjórna hvort maður talar eða syngur, nú eða ætlar að taka hana upp "hættu tala/syngja/koma" Þetta er voða fyndið þangað til hún verður reið ;) ...eða jú það er ennþá fyndið þá líka! ...hahaha... En hún kemt nú ekki upp með allt múður þótt hún reyni það...