Allavega var Vorhátíð hjá Talþjálfun Reykjavíkur í gær og óvissuferð. Við vorum auðvitað bara flottar á því og byrjuðum í mat á kaffihúsinu í Grasagarðinum. Þar fengu allar voða flott krem og svo var farið í Laugar Spa í marga klst og legið í bleyti og slökun. Maður var bara eins og ofsoðið kjöt á eftir maður var svo linur!
Eftir þetta dugði ekkert minna en matur í Perlunni. Ég hef aldrei borðað þar eða komið upp í þennan "snúning" en það var sko bara hið besta mál. Reyndar fékk ég ljótasta og versta kokteil sem ég hef smakkað; svona drullubláan og svooooo áfengan að ég fann á mér eftir fyrsta sopann! En maturinn var góður og mikið hlegið.Í dag var svo óvissuferð Ingunnarskóla! Það var sko með allt öðru sniði og meira í ætt við það sem orðabókin segir um óvissuferðir: hópur fólks í rútu, með bland í pela, misgóða brandara, samkvæmisleiki og sund! Segi svona. Okkur var skipt í nokkur lið og ég var liðsstjóri í Bláa liðinu.
Auðvitað leiddi ég liðið til sigurs, hvað annað?? Híhí. Og er það í annað skiptið sem ég vinn eitthvað á 2 dögum því í gær fékk ég tölvupóst þar sem mér var tilkynnt að ég hefði unnið kvöldverð fyrir tvo á Grillinu að verðmæti 28þús!!! Fyrir að taka þátt í ógeðslega leiðinlegri könnun fyrir LÍN. Eins gott að ég vann! En aftur að óvissuferðinni. Við fórum sem sagt á Stokkseyri með viðkomu í fjörunni, og skoðuðum Álfasafnið og Draugasafnið og borðuðum á Við Fjöruborðið. Allt saman mjöööööööög skettilett. Líka svo gott veður. Allir voru í náttfötum því það var þemað. Ég er svo meðvirk að ég var alveg að farast yfir að vera að skemma fyrir hinum matargestunum með látum og fíflagangi! Greinilegt að staupin 4 dugðu ekki til að slá á meðvirknina!Á morgun á svo pabbi labbi afmæli og ætlum við að hafa það notalegt með fjölskyldunni í sumarblíðunni. Til hamingju pabbi.

Þetta er orðinn svo langur pistill að ég ætla að hætta og fara að sofa! Nú er ég komin í frí frá skólanum og bara 2 mánudagar eftir á stofunni svo ég segi bara GLEÐILEGT SUMARFRÍ:D
3 ummæli:
Til hamingju með að vera komin í sumarfrí:o)
Kveðja Jóna Björk
Til lukku með vinninginn og aftur til hamingju með pabba góða. Takk fyrir yndislegan mat í gær og til lukku með sumarfríið.
Hvulagx líferni er þetta...bara sukkað endalaust!!!!
Sumarfrí er gott, velkomin í sumarfrí :) Við vorum að koma heim mæðgurnar í dag eftir tæplega vikudvöl í sveitinni góðu...gott veður, lónið og börnin sæl og glöð...dásamlegt alveg...
...hilsur til ykkar...
Skrifa ummæli