19. febrúar 2005

Að sakna marblettar

Í brúðkaupsveislunni steig einhver ofaná á tærnar á mér. Afleiðingin var marblettur undir nöglinni á stórutá vinstri fótar. Núna, 6 mánuðum og 12 dögum síðar hvarf hann! Ég er ekki frá því að ég sé dálítið sorgmædd, þetta var nú einu sinni brúðkaupsmarbletturinn minn!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það grær áður en þú giftir þig segir máltakið...ætli það grói ekki líka eftir hana ;) Annað væri ómögulegt!

Annars fórum við Ragnheiður litla...bráðum að verða stór...á nýju Bangsímon myndina í gær. Þvílík skemmtun! Við svifum um á bleiku bangsimon skýi eftir að hafa kynnst ævintýrum Frílsi og Gúra vini hans. Þú verður að fara Hrafnhildur! Algjör nauðsyn ;)