24. ágúst 2011

Fyrsti skóladagurinn

Þá er stórum áfanga náð í lífi Ísaks-og foreldranna. Fyrsti skóladagurinn á enda! Í gær fórum við í viðtal hjá Jenný kennara sem gekk rosa vel. Ísak hefur verið með smá áhyggjur, sagt að hann vilji ekki byrja í skóla og svona. En hann spjallaði dálítið við Jennýju sem virkar ofsalega fín. Svo voru það Maggi og Jakob sem fylgdu honum út í Rimaskóla í morgun. Hann hafði verði ofsa stoltur og spenntur með skólatöskuna á bakinu. Því miður gleymdist myndavélin en ég tók myndir af honum í gær á leið í viðtalið. Ég var með hnút í maganum í allan dag yfir því hvernig honum myndi ganga og líða. Ég er búin að kvíða þessu dálítið þar sem hann þekkir fáa og svona. Fékk frí eftir hádegi í vinnunni til að geta sótt hann og farið með honum í heimsókn í frístundaheimilið sem kallast Tígrisbær. Hann var svo mjög glaður þegar ég kom, sýndi mér allt og var spenntur að fara í Tígrisbæ. Þar vildi hann fyrst hafa mig frekar nálægt en svo varð ég algjörlega óþörf og út úr kú þarna. Þau fóru í nafnaleik og áttu að segja nafnið sitt og hvað þeim þætti skemmtilegt. Ísak sagði að sér þætti gaman í Tígrisbæ :-)
Ég ákvað þá bara að fara í göngutúr og sótti hann svo hálftíma seinna alsælan. Á morgun ætlar hann sko að fara ALEINN í Tígrisbæ-mjög spenntur. Það er því þungu fargi af okkur foreldrunum létt svona eftir fyrsta daginn. Vonandi eignast hann svo bara fljótt vini.

Það verða örugglega viðbrigði að vera foreldri grunnskólabarns. Spennandi tímar framundan en mjög gott að eiga einn ennþá í leikskóla ;-)

2 ummæli:

Anna sagði...

Mikið er gaman að lesa þessa færslu. Ég hugsaði nokkrum sinnum til Ísaks og ykkar í dag. Þetta er vissulega stór áfangi og svo misjafnt hvernig blessuðu börnin höndla þessi tímamót. Nú fyrst byrjar vinnan Hrafnhildur mín. Læra heima, læra heima :-) Nú hefst grunnskólaganga þín aftur...eða svona næstum því.

Nafnlaus sagði...

ójá man þessa tilfinningu! Nú á ég sjöttabekking yngstan og stúdent eftir bara 4 vikur...